Boðar andstöðu við stjórnarfrumvörp ráðherra Framsóknar og VG

Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðis­flokksins kallar hugmynda­fræðina að baki frumvarpi Sigurðar Inga Jóhanns­sonar samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra um lágmarks­fjölda íbúa í sveitar­félögum „ógeð­fellda“ í grein í Morgun­blaðinu í dag.

Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðis­flokks og formaður efnahags- og viðskipta­nefndar Alþingis boðar í aðsendri grein í Morgun­blaðinu í dag að hann muni að óbreyttu ekki geta stutt nokkur þeirra mála sem ráðherrar Vinstri grænna og Framsóknar­flokks hafa lagt fram á Alþingi að undan­förnu.

Hann segir ákveðin stjórnar­frumvörp illa samræmast þeirri hugmynda­fræði sem hann hafi aðhyllst og barist fyrir; sem byggist á trú á frelsi einstaklingsins, því að tryggja vald­dreifingu og forðast miðstýringu. „Oft þarf ég að sveigja eitthvað af leið en ákveðin grunn­prinsipp verða ekki brotin. Ekki þegar kemur að þvingunar­aðgerðum gagnvart sveitar­félögum, ekki við stofnun miðhálendis­þjóðgarðs, fjölmiðla­frumvarpi og ekki við endur­skoðun sóttvarna­laga. Listinn er (óþægilega) langur,“ skrifar Óli Björn.

„Ógeðfelld“ hugmyndafræði valdboðs að baki sveitarfélagafrumvarpi

Í grein sinni fjallar hann sérstak­lega um frumvarp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra sem felur í sér að lágmarks­fjöldi íbúa íslenskra sveitar­félaga skuli vera 1.000. Hann segir frum­varpið byggja á „hugmynda­fræði valdboðs og gengur gegn hugmynda­fræði sjálfs­stjórnar og frelsis sem Sjálfstæðis­flokkurinn hefur byggt á.“

Hann segir að um það verði ekki deilt að sameining og fækkun sveitar­félaga geti verið ákjósanleg og skyn­samleg fyrir íbúana, en markmiðið sé hins vegar ekki að fækka sveitar­félögum heldur styrkja og efla þjónustu við borgarana. Þar að auki hafi sveitar­félögum fækkað hressilega.

„Árið 1990 voru þau 204 talsins en eru nú 69. Víða eru viðræður um sameiningu. Þær viðræður eru á forsendum íbúanna sjálfra og þeir einir taka ákvörðun. Embættis­menn í Reykjavík stjórna ekki ferðinni,“ ritar Óli Björn og bætir við að hugmynda­fræði vald­boðsins sem liggi að baki lögþvingaðri sameiningu sé „ekki aðeins ógeðfelld heldur byggist hún á misskilningi og/eða vísvitandi blekkingum.“

„Hagkvæmni sveitar­félaga og gæði þjónustu við íbúanna er ekki í réttu hlutfalli við íbúa­fjölda. Fjárhagsleg staða ræðst miklu fremur af hæfi­leikum sveitar­stjórnar­manna og hvernig þeim tekst að uppfylla skyldur sínar en fjölda íbúa,“ skrifar þing­maðurinn, sem telur best að „halda valdinu í heima­byggð.“

„Löngunin til að stýra öllu úr 101-Reykjavík er sterk“

Varðandi frumvarp Guðmundar Inga Guðbrands­sonar auðlinda- og umhverfis­ráðherra um Hálendis­þjóðgarð segir Óli Björn að í flestu sé hugmyndin heillandi, en að hugmynda­fræði „stjórn­lyndis og miðstýringar“ megi ekki ráða för.

„Löngunin til að stýra öllu frá 101-Reykjavík er sterk. Hætta er sú að valdið sogist úr heima­byggð til örfárra einstaklinga sem neita að skilja hvernig hægt er að lifa í sátt við náttúruna, verja hana og nýta auðlindir á sama tíma,“ ritar Óli Björn.

„Forsendan er að skipulags­vald sveitar­félaga sé virt og umráða- og nýtinga­réttur íbúanna, sem í gegnum aldirnar hafa verið gæslumenn nátt­úrunnar, haldist. Einka­framtakið og eignar­rétturinn hafa verið mikilvæg vörn fyrir náttúruna,“ skrifar Óli Björn.

Hann segist munu styðja hugmyndina um miðhálendis­þjóðgarð ef hún verði byggð á „skynsamlegri nýtingu auðlinda hálendisins, frjálsri för almennings, virðingu fyrir eignar­réttinum, frumkvöðla­rétti og sjálfs­stjórn sveitar­félaga í skipulags­málum.“

Fjölmiðlafrumvarpið fram komið á ný með svipuðu sniði

Eins og áður segir minnist Óli Björn í grein sinni einnig á fjölmiðla­frumvarp Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menningar­mála­ráðherra, sem samþykkt hefur verið í ríkis­stjórn og lagt fram á þingi í þriðja sinn.

Aftur er lagt til styrkja­kerfi í svipaðri mynd og í fyrri tvö skiptin sem frumvarp Lilju hefur litið dagsins ljós, en frum­varpið hefur tvívegis sofnað svefninum langa í nefndar­starfi vegna andstöðu Óla Björns og fleiri þingmanna Sjálfstæðis­flokks. Þeir hafa talað gegn styrkja­kerfi og lagt til að skatt­kerfinu verði í staðinn beitt til þess að styðja við einka­rekna fjölmiðla og einnig að dregið verði úr umsvifum Ríkis­útvarpsins á móti.

Samkvæmt frumvarpi Lilju yrðu styrkir til fjölmiðla alls tæpar 400 milljónir króna á ári og þeim útdeilt með sama hætti og gert var í ár, þegar ákveðið var að styrkja einka­rekna fjölmiðla um allt að 25 prósent af útlögðum ritstjórnar­kostnaði vegna áhrifa kórónu­veiru­faraldursins.

Enginn fjöl­miðill gæti þó fengið meira en 25 prósent af heildar­upphæðinni, eða hæst tæpar 100 milljónir. Þegar kórónu­veiru­styrkjunum var úthlutað í haust skiptu Árvak­ur, Sýn og Torg, þrjú stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, með sér rúmum 250 millj­ónum af þeim 400 milljóna króna stuðningi sem einka­reknir fjöl­miðlar fengu.

Brynjar veður í fjölmiðlafrumvarpið

Þessi þrjú frumvörp, auk frumvarps endur­skoðuðum sóttvarna­lögum sem Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra hefur lagt fram, virðast ekki falla í kramið hjá Óla Birni í óbreyttri mynd. Og andstaða við stjórnar­frumvörp sem nýlega hafa verið lögð fram er boðuð víðar innan þing­flokksins.

Brynjar Níelsson þingmaður flokksins tjáir sig um fjölmiðla­frumvarp Lilju á Facebook í dag og segir hægt að líkja einka­reknum fjöl­miðlum í dag við fárveikan og kvalinn sjúkling.

„Læknirinn, menntamála­ráðherra, með aðstoð hjúkrunar­fræðinganna í ríkis­stjórn, ætlar að dæla ópíum í sjúklinginn í stað þess að skera meinið burt eða halda því í skefjum svo hægt sé að lifa með því,“ skrifar Brynjar og vísar þar til Ríkis­útvarpsins sem meinsins, sem hrjái frjálsu fjöl­miðlana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár