Ólafur Ragnar sagður hafa mært hugmyndir Xi Jinping um stjórnarfar

Á forsíðu dagblaðsins China Daily í dag segir að Ólafur Ragnar Grímsson hafi mært hugmyndir forseta Kína um stjórn­arfar, á viðburði sem haldinn var í Hörpu fyrr í vikunni í tilefni af útgáfu bókar eftir Xi Jinping á íslensku.

Ólafur Ragnar Grímsson á viðburðinum sem fram fór í Hörpu á þriðjudag.
Ólafur Ragnar Grímsson á við­burð­inum sem fram fór í Hörpu á þriðju­dag. Mynd: Af vef kínverska sendiráðsins á Íslandi.

Ólafur Ragnar Grímsson fyrr­verandi forseti Íslands hélt ávarp við útgáfu­athöfn í tilefni íslenskrar útgáfu bókarinnar Xi Jinping: Kínversk stjórnmál I sem fram fór í Hörpu á þriðjudag. Viðburðurinn var haldinn á vegum kínverska sendi­ráðsins á Íslandi og Alþjóðlegrar útgáfu­samsteypu Kína.

Á vef kínverska sendi­ráðsins á Íslandi og í forsíðu­umfjöllun dagblaðsins China Daily, sem er alþjóðlegt málgagn kínverska stjórn­valda, er Ólafur Ragnar í ræðu sinni sagður hafa rifjað upp samskipti sín við Xi Jinping á fyrri árum og lýst því að hann hafi verið mjög hrifinn af hugmyndum hans um stjórn­speki.

Á vef sendi­ráðsins er Ólafur Ragnar sagður hafa tjáð viðstöddum að hann hefði verið „impressed by President Xi Jinping's philosophy of governing the country“ og í frétt China Daily segir að Ólafur Ragnar hafi verið „deeply impressed by Xi's ideas on governance“ en þessi ummæli eru ekki höfð eftir forsetanum fyrr­verandi í beinni ræðu.

Þorsteinn Kristinsson doktorsnemi í stjórnmála­fræði í Lundi í Svíþjóð vakti athygli á þeim ummælum sem höfð eru eftir Ólafi Ragnari á forsíðu China Daily í færslu á Twitter í morgun.

Hann beindi þeirri spurningu til forsetans fyrr­verandi hvort þarna væri rétt eftir honum haft, að hann hefði lýst sig innilega hrifinn af stjórn­speki Xi, „mannsins sem er að færa Kína frá einræði aftur til alræðis og hyggst skipa sjálfan sig leiðtoga fyrir lífstíð“.

„Ansi skrautlegar ýkjur“

Kjarninn spurði Ólaf Ragnar að því sama, og segir hann í skriflegu svari við fyrir­spurn blaða­manns að um sé að ræða „ansi skrautlegar ýkjur í Ríkis­fréttastofu Kína“. Hann vísaði svo til svars sem hann veitti Frétta­blaðinu í dag, þar sem hann meðal annars sagði það út í hött að hann hafi verið að tala um stuðning við stjórn­arfar í Kína.

„Ég segi nú við þennan á­gæta mann sem hóf þessa um­ræðu á Twitter að vara sig á kín­versku ríkis­frétta­stofunni,“ sagði Ólafur Ragnar við blaðið.

Samkvæmt frétt China Daily sagði Ólafur Ragnar einnig í ávarpi sínu að hann fagnaði útgáfu bókar Xi á íslensku, mikilvægt væri að fyrir þróun heimsins að skilja Kína og að íslensk útgáfa bókarinnar, sem er á vegum BF-útgáfu, myndi stuðla að sameiginlegum skilningi og vinsam­legum tengslum á milli Kína og Íslands.

Á vef kínverska sendi­ráðsins er haft eftir He Rulong sendi­herra Kína hérlendis að útgáfa bókarinnar á íslensku beri vitni um mikil­vægið sem Kína veiti tengslum sínum við Ísland og gagnkvæmri vináttu. Bókin muni hjálpa íslenskum lesendum að skilja hugsana­gang Xi Jinping forseta um hvernig skuli stýra Kína í átt til þjóðlegrar velsældar.

Rit Xi hafa komið út á 37 tungumálum

Bókin sem nú er komin út á íslensku er fyrsta ritið af fjórum í bókaröð Xi Jinping, sem inni­heldur valdar ræður og skrif kínverska forsetans. Bækurnar hans hafa nú verið þýddar á alls 37 tungumál og óhætt er að fullyrða að íslenska sé smæsta tungu­málið sem bók eftir Xi hefur verið gefin út á.

Bækur Xi hafa fengið misjafna dóma þeirra sem þær hafa lesið, en ýmsum þykja þær þó veita gagnlega innsýn í þankagang leið­togans og voru meðal annars fréttir sagðar af því að Mark Zuckerberg forstjóri Meta (áður Facebook) hefði legið yfir bókunum og pantað eintök fyrir starfs­menn fyrir­tækisins.

Það vakti svo nokkra athygli undir lok síðasta árs er Reuters skýrði frá ástæðunum fyrir því að Amazon hefði ákveðið að loka á stjörnu­gjöf alls varnings sem boðinn er til sölu í kínverskri útgáfu verslunar­risans.

Að sögn heimildar­manna Reuters voru neikvæðar umsagnir og stjörnu­gjafir um bók Xi ástæðan fyrir því að þetta var gert, að kröfu kínverskra stjórn­valda. Allt undir fimm stjörnum var vanda­málið, að sögn heimildar­manns Reuters sem þekkti til málsins hjá Amazon.

Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Ólafs Ragnars eftir að þau bárust

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár