Jarðboranir í Krýsuvík: Mögulegar hættur óþekktar

Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla­fræði við Háskóla Íslands, segir að það sé ekki vitað hverjar afleiðingar rannsóknar­borana í Krýsuvík verði. Til að hægt sé að meta það vanti frekari rann­sóknir á jarð­hitakerfinu. „Við þurfum að skilja það fyrst,“ segir hann.

Jarðboranir á Krýsuvíkursvæðinu
Jarð­bor­anir á Krýsu­vík­ur­svæð­inu Þor­valdur Þórð­ars­son telur að gera þurfi rann­sóknir á jarð­hita­kerf­inu til þess að skilja áhrif starf­semi þar. Mynd: Art Bicnick

Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla­fræði við Háskóla Íslands, telur mikilvægt að gera frekari rann­sóknir við Svarts­engi til að meta mögulegar hættur sem starfsemi á svæðinu getur haft í för með sér. Í maí hóf HS Orka annan áfanga rannsóknar­borana á Krýsuvíkur­svæðinu og eru tvær rannsóknar­borholur norður af Bleikhól í nánd við Kleifar­vatn áætlaðar. Framkvæmdir eru þegar hafnar. Í fyrra­sumar var djúp rannsóknar­hola boruð við Sveiflu­háls í nánd við ferðamanna­staðinn Seltún.

HS Orka segir markmiðið með rannsóknar­borholum á Krýsuvíkur­svæðinu að athuga nýtingar­möguleika jarðvarma­auðlindarinnar til heitavatns­framleiðslu fyrir Hafnar­fjörð, höfuð­borgar­svæðið og raforku­framleiðslu inn á lands­netið. „Jarðvarmaver á svæðinu yrði þjóð­hagslega mikil­vægur orkuinnviður og liður í að auka afhendingar­öryggi orku á þétt­býlasta svæði landsins.“

Rann­sóknir á Reykja­nesiStarf­semi er þegar hafin á Krýsu­vík­ur­svæð­inu en óljóst er hvort hún hafi í för með sér hættur.

„Við höfum ekki gert rannsóknirnar“

Þorvaldur segir erfitt að segja til …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GT
    Geir Thorolfsson skrifaði
    Þð er búið að rannsaka jarðhitasvæðið í Krísuvík í meira en 75 ár. Allr hugsanlegar yfirborðs og jarðeðlisfræðilegar mælingar hafa verið gerðar. Rannsóknarboranir hafa verið gerðar, en þær haf verið grunnar þangað til HS Orka fór að bora á síðustu árum. Viðbótar upplýsingar fást aðeins með meiri borunum.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár