Allar póstsendingar frá hinu opinbera verði stafrænar árið 2025

Gert er ráð fyrir að ríkið spari sér 300-700 mill­ljónir á ári með því að senda öll gögn í staf­ræn póst­hólf fremur en með bréf­pósti. Frum­varps­drög fjár­mála­ráð­herra um þetta hafa verið lögð fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Gert er ráð fyrir því að rík­is­sjóður spari 300 til 700 millj­ónir á ári hverju og umtals­verð hag­ræð­ing verði einnig hjá sveit­ar­fé­lögum, ef nýtt frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um staf­rænt póst­hólf verður að veru­leika, en drög að frum­varp­inu voru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í gær.

Með frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að það verði meg­in­regla að stjórn­völd sendi gögn til ein­stak­linga og lög­að­ila með staf­rænum hætti. Allar stofn­anir verða þannig í fyll­ingu tím­ans skyld­aðar til þess að senda gögn staf­rænt og er stefnt að því að allar stofn­anir verði byrj­aðar að bjóða upp á staf­rænar birt­ingar eigi síðar en 1. jan­úar 2025.

Ætlan frum­varps­ins er meðal ann­ars að eyða öllum vafa um að rétt­ar­á­hrif slíkra staf­rænna birt­inga séu þau sömu og gilda um bréf­póst í dag. Tugir stofn­ana nota þegar póst­hólfið á Ísland.is til að senda gögn á fólk og fyr­ir­tæki, án þess að sér­stök lög eða reglur um þessa mið­lægu þjón­ustu­gátt stjórn­valda séu til staðar.

Talið öruggara en bréfpóstur

Í umfjöllun um mat á áhrifum frum­varps­ins, sem fylgir drög­unum, segir að öryggi send­inga frá hinu opin­bera muni aukast til muna, þar sem bréf­póstur sé gjarnan „með­höndl­aður af nokkrum ein­stak­lingum og því ekki fylli­lega örugg með­ferð gagna,“ en staf­rænar send­ingar fari beint í póst­hólf þess sem upp­lýs­ing­arnar séu ætl­aðar.

Auk áður­nefnds fjár­hags­legs hag­ræðis fyrir ríkið og sveit­ar­sjóði segir einnig að frum­varpið muni hafa jákvæð áhrif á umferð, kolefn­islosun og tíma­notkun almenn­ings.

„Þrátt fyrir að ætla megi að í upp­hafi komi til auk­ins kostn­aðar og auk­innar vinnu hjá stofn­unum, sér­tak­lega á inn­leið­ing­ar­tíma­bili, þá er ljóst að til lengri tíma verður tölu­verð hag­ræð­ing fyrir sam­fé­lagið allt,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Rík­is­stjórnin stað­festi í maí árið 2018 þá stefnu sína að staf­ræn þjón­usta eigi að verða meg­in­leið sam­skipta á milli hins opin­bera, almenn­ings og fyr­ir­tækja og er frum­varpið sem fjár­mála­ráð­herra hefur nú lagt fram til kynn­ingar liður í þeirri ætlan.

Danska leiðin farin

Í grein­ar­gerð segir að horft hafi verið til fram­kvæmd­ar­innar á Norð­ur­löndum við smíði frum­varps­ins.

Í Finn­landi, Noregi og Svíþjóð sé fram­kvæmdin sú að rík­is­stofn­unum og sveit­ar­fé­lögum upp að vissu marki sé skylt að bjóða upp á gagna­send­ingar í staf­ræn póst­hólf, en ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum ekki skylt að hafa slík póst­hólf. Reynslan þaðan sýni að notkun þessa úrræðis sé til­tölu­lega lítið útbreidd í lönd­unum þremur.

Í Danmörku er reynslan hins vegar önnur, en þar er opin­berum aðilum skylt að senda gögn í staf­ræn póst­hólf. Ein­stak­lingum og lög­að­ilum er einnig skylt að hafa slík póst­hólf og ber að kynna sér gögn sem þangað ber­ast og bregð­ast við þeim, eftir aðstæðum. Íslenska frum­varpið byggir á dönsku leið­inni í þessum efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár