Tekjuhæstu forstjórar landsins með á þriðja tug milljóna á mánuði

Tekju­blöðin koma út í dag og á morgun. Sex forstjórar voru með yfir tíu milljónir króna á mánuði í tekjur að meðaltali í fyrra.

Jón Björnsson, fyrr­verandi forstjóri Festis, var tekju­hæsti forstjóri landsins í fyrra með um 28,4 milljónir króna á mánuði. Jón stýrði Festi, sem rekur N1, Krónuna, Elko og Bakkann, þangað til í byrjun september í fyrra.

Þar á eftir komu Kári Stef­ánsson, með 27,5 milljónir króna á mánuði, og Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, með 27,4 milljónir króna á mánuði. Þetta kemur fram í Tekju­blaði Frjálsrar verslunar sem kom út í morgun. Greint er frá þessu á vef Viðskipta­blaðsins, en útgáfu­félag þess gefur einnig út Frjálsa verslun.

Íslensk erfða­greining sendi frá sér athugasemd í morgun þar sem fram kemur að mánaðar­laun Kára Stef­ánssonar hjá fyrir­tækinu séu 7,5 milljónir króna, en ekki sú tala sem tilgreind er í tekju­blaðinu. „Mismunurinn stafar að mestu af því að Kári Stef­ánsson ákvað leysa til sín sparnað úr séreigna­sjóði lífeyris­sjóðs í fyrra. Sú eingreiðsla bætist við skatt­stofninn og þannig verður þessi misskilningur til.“

Tekju­blöðin, þar sem tekjur valinna Íslendinga verða opinberaðar á grund­velli upplýsinga á greiddu útsvari samkvæmt álagningar­skrám Ríkis­skattstjóra (RSK), koma út í dag og á morgun. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom, líkt og áður sagði, í verslanir í dag þriðjudag en tekjublað DV kemur út á morgun, miðvikudag.

Í frétt Viðskipta­blaðsins um tekjur forstjóra samkvæmt Frjálsri verslun kemur fram að Tómas Már Sigurðsson, fyrr­verandi forstjóri Alcoa USA, hafi verið með 14,7 milljónir króna í tekjur á mánuði í fyrra, Valur Ragnarsson, fyrr­verandi forstjóri Medis, hafi verið með 10,4 milljónir króna á mánuði og Grímur Sæmundsen, forstjóri og helsti hluthafi Bláa Lónsins, fékk 10,3 milljónir króna í laun á mánuði árið 2018. Samkvæmt þessu voru sex forstjórar með mánaðar­laun sem voru yfir tíu milljónum króna á mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár