Jón Björnsson hættur sem forstjóri Festar

Jón Björnsson er hættur sem forstjóri Festar. Samkeppnis­eftirlitið samþykkti í lok júlí kaup N1 á öllu hlutafé Festi hf. For­stjóri sam­einaðs fé­lags N1 og Fest­ar verður Eggert Þór Kristó­fers­son sem nú er forstjóri N1.

Jón Björnsson er hættur sem forstjóri Festar. Félagið rekur meðal annars verslanir Krónunnar og vöruhúsið Bakkann.

Jón hefur verið forstjóri Festar frá því í febrúar 2014 en var áður forstjóri ORF Líftækni, Magasin du Nord í Kaupmanna­höfn og Haga hf.

Samkeppnis­eftirlitið samþykkti í lok júlí kaup N1 á öllu hlutafé Festi hf. For­stjóri sam­einaðs fé­lags N1 og Fest­ar verður Eggert Þór Kristó­fers­son sem nú er forstjóri N1.

Mbl.is greinir frá því að Jón hafi sent samstarfs­fólki sínu tölvupóst fyrir helgi þar sem fram kom að þótt hann láti nú af störfum sem forstjóri Festi muni hann gegna embætti stjórnar­formanns Krónunnar.

Fengu 344 milljónir

Kaup­verð hluta­fjár Fest­ar, að teknu til­liti til leiðrétt­ing­ar­á­kvæða í kaup­samn­ingi, nem­ur 23,7 millj­örðum króna og var það ann­ars veg­ar greitt með af­hend­ingu ríf­lega 79,5 millj­óna hluta í N1 á geng­inu 115, eða 9,2 millj­arða króna, og hins veg­ar með ríf­lega 14,5 millj­arða í formi reiðufjár.

Sex lykil­stjórnendur Festar, þar á meðal Jón Björnsson forstjóri, fengu samanlagt um 344 milljónir króna greiddar þegar kaupréttar­samningar þeirra voru gerðir upp fyrr á árinu í tengslum við sölu á keðjunni til N1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár