Taylor Swift lætur fjarlægja allar plötur sínar af Spotify

Popp­stjarnan Taylor Swift, sem er á meðan vinsælustu tónlistar­manna í heimi í dag, setti ekki nýjustu plötuna sína, sem kallast eftir fæðingarári hennar 1989, á tónlistar­veituna Spotify. Auk þess staðfesti talsmaður Spotify í samtali við Business Insider að Swift hafi látið fjarlægja allar plötur sem hún hefur gefið út af veitunni. Aðdáendur hennar munu því þurfa að leita annarra leiða til að hlusta á tónlist Swift en að greiða mánaðar­lega áskrift af Spotify.

Ein króna af hverri spilun


Tón­list­ar­menn græða mun minna á því að selja tón­list­ina sína í gegnum tón­list­ar­veitur á borð við Spotify en þeir gera á því að selja staf­rænar plötur og lög í gegnum þjón­ustur á borð við iTu­nes. Spotify greiðir reyndar 70 pró­sent af öllum tekjum sínum til plötu­út­gef­anda, í ár verður sú tala um millj­arður Banda­ríkja­dala eða 123 millj­arðar króna. Spotify áætlar að hver spilun skili lista­manni á milli 0,006 og 0,0084 Banda­ríkja­dala í höf­unda­rétt­ar­greiðslum, sem gera um 0,7 upp í rúma eina krónur. Það finnst mörgum lista­mönnum, meðal ann­ars Taylor Swift, alls ekki vera nóg.

Spotify segist elska Taylor Swift


Spotify birti yfir­lýs­ingu á heima­síðu sinni í dag vegna aðgerða Swift. Þar segir að fyr­ir­tækið elski Taylor Swift og að yfir 40 millj­ónir Spotify-not­endur elski hana enn meira. Nálægt 16 millj­ónir þeirra hafi hlustað á lag með henni síð­asta mán­uð­inn og tón­list hennar væri að finna á meira en 19 þús­und spil­un­ar­listum not­enda Spotify.

„Við vonumst til þess að hún skipti um skoðun og leggist á árar með okkur við að byggja upp nýtt tónlistar­hagkerfi sem virkar fyrir alla. Við trúum því að aðdáaendur eigi að geta hlustað á tónlist hvar sem er og hvenær sem er, og að listamenn eigi algjöran rétt til þess að fá greitt fyrir verk sín og verja sig fyrir sjóræningja­starfsemi. Þess vegna borgum við næstum því 70 prósent af tekjum okkar aftur til tónlistar­samfélagsins“.

Spotify er metið á nærri fjóra milljarða dala, um 490 milljarða króna. The Journal greindi frá því í sumar að Spotify sé mögulega til sölu fyrir yfir tíu milljarði dala, um 1.225 milljarða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár