Rætur martraðarlandsins

Bók

Jöt­un­steinn

Höfundur Andri Snær Magnason
Mál og menning
128 blaðsíður
Niðurstaða:

Aðgengileg bók um flókið og mikilvægt málefni sem skapar nýja vitund á leifturstundu.

Gefðu umsögn

Það fyrsta sem sló mig þegar ég tók upp Jöt­un­stein Andra Snæs Magna­sonar var sú hugsun að bókin er lauf­létt. Þetta er ekki steinn, hvað þá jöt­un­steinn. Þetta er stein­vala, hugs­aði ég.

Þannig væri kom­inn áþreif­an­legur vitn­is­burður um að Morg­un­blaðið og spjall­stjór­inn Stefán Einar Stef­áns­son hefðu rétt fyrir sér, þegar blað­síður bóka voru taldar, þeim deilt í úthlutuð lista­manna­laun og nið­ur­staðan birt sem dómur yfir rétt­mæti þeirra og svo rýru sam­fé­lags­legu virði Andra Snæs.

Í þeirri hugsun er eng­inn grein­ar­munur gerður á magni og gæðum. Það er einmitt gagn­rýni bók­ar­innar. Jöt­un­steinn er ekki sex hæða blokk, heldur hag­an­lega smíðað timb­ur­hús í gamla Vest­ur­bænum. Á mann­legum skala, skilj­an­leg, aðgengi­leg og með sögu.

Sagan fjallar um arki­tekt­inn Árna sem fær nefnd eftir sér svokölluð Árnahús, blokkir með hámarks­nýt­ingu lóða og lág­marks­kostn­aði. Innri ramma­sagan ger­ist á sek­úndu­brotum.

Sem hefð­bundin skáld­saga er þetta bæði harm­leikur og lær­dóms­saga. En hún …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár