Mitt Romney varar við hættum internetsins

Auðkýfingurinn Mitt Romney, og fyrr­verandi forseta­fram­bjóðandi bandaríska Repúblikana flokksins, varar við haturs­orðræðunni sem viðgengst á internetinu. Frétta­miðillinn The Verge greinir frá málinu, en ummælin lét Romney falla í viðtali hjá sjónvarps­konunni Katie Couric á dögunum. Viðtalið er hægt að sjá hér að neðan.

Í viðtalinu, þar sem meðal annars er fjallað um heimilda­mynd um kosninga­baráttu Romney-fjöl­skyldunnar sem aðgengileg er á Netflix, segir forseta­fram­bjóðandinn fyrr­verandi að hann hafi forðast að lesa ummæli um sig á samfélags­miðlum á meðan á kosninga­baráttunni um forseta­stólinn stóð.

„Þú vilt vilt ekki hafa einhvern 25 ára rithöfund, sem er að ráðast á þig, á heilanum allann daginn,“ sagði Mitt Romney í viðtalinu við Katie Couric. Eiginkona öldungar­deildar­þing­mannsins, Ann Romney, tekur í sama streng, „Athugasemdirnar á Instagram eru svo rætnar.“

Romney segir að þá hafi hann ekki heldur lesið blaða­umfjallanir um sig í kosninga­baráttunni, en annað hafi gilt um sjónvarps­umfjallanir, enda séu þar við lýði annars konar vinnu­brögð. Þangað inn nái ekki hatrið og illgirnin öllu jöfnu.

Þetta viðhorf hefur sjálfsagt gert það að verkum að Romney-fjöl­skyldan hefur haldið sönsum, að svo er virðist að minnsta kosti, þrátt fyrir kaldhæðnisleg og niðrandi ummæli um fjöl­skylduna á síðustu misserum.

Hér fyrir neðan gefur að líta viðtalið sem Katie Couric tók við Romney-fjöl­skylduna á dögunum fyrir Yahoo Global News.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár