Ráðherra vill fara „IKEA leiðina“ í húsnæðismálum

Eygló Harðar­dóttir, ráðherra húsnæðis­mála, spyr á bloggsvæði sínu í dag hvort ekki sé hægt að nálgast íbúðar­húsnæði með sama hætti og IKEA gerir með vörur, þar sem verð er ákveðið fyrst en ekki síðast.

„Þegar kemur að heimilum okkar, húsunum sjálfum er oft eins og við höfum við nálgast þetta frá hinni hliðinni, þar sem verðið er sett síðast við byggingu.

Því spyr ég: Af hverju getum við ekki hægt að nálgast heimilin sjálf, íbúðar­húsnæðið með sama hætti?“ skrifar Eygló. Hún segir að helsta snilld Ingvars Kamprad, stofnanda IKEA, hafi ekki verið sú að selja húsgögn í flötum pökkum sem neytandinn sjálfur setti saman, heldur sú að IKEA hafi byrjað á að skilgreina verðið sem flestir neytendur hafi efni á að borga og síðan gert allt til að hanna vöruna, fram­leiðsluna og verslunina í samræmi við það. „Flötu pakkarnir voru einfald­lega leið að því markmiði að bjóða heimilum upp á vel hannað vöru á verði sem þau höfðu efni á,“ skrifar hún og spyr hvort ekki megi fara sömu leið í húsnæðis­málum.

Fjármagn tryggt fyrir 2.300 íbúðir


Greint var frá því í dag að fjár­mögnun hafi verið tryggð til bygg­ingar um 2.300 félags­í­búða á næstu fjórum árum, í sam­ræmi við frum­varp Eyglóar um stofn­styrki til félags­legs hús­næðis. Frumvarp þess efnis verður lagt fyrir á kom­andi þingi en það náði ekki fram að ganga á síð­asta þingi, þegar frum­vörp Eyglóar um hús­næð­is­mál í tengslum við gerð kjara­samn­inga dög­uðu uppi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár