„Íslendingar tala svona erlendis“

Magnús Ingi tjáir sig um umtalað við­tal

Myndband af Magnúsi Inga Magn­ús­syni, eig­anda Texas­borg­ara og Sjáv­ar­bars­ins hefur gengið sem eldur um sinu um netið. Í mynd­band­inu er Magnús Ingi staddur í Fil­ipps­eyjum þar sem hann tekur við­tal við gúmmí­trés­bændur fyrir ÍNN. Athygli hefur vakið að hann notar íslensku og ensku til skiptis í við­tal­inu og spyr gúmmí­trés­bænd­urna meðal ann­ars út í „gúmmí“ en ekki „rubber“ eins og það leggst á ensku. „This is your brother... and he take care of the gúmmí­tré,“ segir hann meðal ann­ars á ísl-ensku.

Ánægður með mikil viðbrögð

Við­mæl­endur hans eru systk­ini sem rækta gúmmí­tré en hann spyr þau út í ferlið. Systirin lýsir því hvernig skorið er í tréð og latex lekur úr, svo setji þau sýru í til þess að latexið harðni. Þá grípur Magnús Ingi fram í og útskýrir: „Heyrðu ég er nú ekki alveg að mér í þessu en sem sagt það kemur svona safi úr trénu og svona, þeir setja eitt­hvað efni í þetta þannig að þetta verði hart. Er það ekki rétt?” spyr hann annan bónd­ann og hlær. Við það brosir bónd­inn ringlaður í mynda­vél­ina.

Magnús er eigandi Texasborgara og Sjávarbarónsins
Magnús er eig­andi Texas­borg­ara og Sjáv­ar­bar­óns­ins Hann seg­ist koma til dyr­anna eins og hann er klæddur. Það gleður hann að við­talið veki lukku hjá lands­mönnum.

„Þetta er bara org­inal ég,“ segir Magnús Ingi í sam­tali við Stundina. Hann kveðst vera mjög ánægður með við­brögðin sem mynd­skeiðið hefur vakið. „Í þessum þáttum reyni ég að hafa fróð­leik, skemmtun og afþr­ey­ingu,“ en það telur hann við­brögðin sýna að hafi tek­ist. „Ég er bara aldrei að lát­ast,“ segir hann um slett­urnar í við­tal­inu. „Þetta er bara org­inal ég. Íslend­ingar tala svona erlendis.“ Aðallega er þetta þó bara skemmtun, segir Magnús Ingi: „Ég er skemmti­kraftur“. Hér að neðan má sjá við­talið umtal­aða.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár