Seðlabankinn unir niðurstöðunni og er búinn að hafa samband við Gunnhildi Örnu

Seðla­banki Íslands segir að verk­ferlar hans í ráðn­ing­ar­málum hafi verið styrktir í kjöl­far þess að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði brotið jafn­rétt­islög með ráðn­ingu upp­lýs­inga­full­trúa í fyrra­sumar.

Seðla­banki Íslands hefur haft sam­band við Gunn­hildi Örnu Gunn­ars­dóttur, sem kærði ráðn­ingu í nýja upp­lýs­inga­full­trúa­stöðu innan bank­ans til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Hún sótti um stöð­una en fékk ekki. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­bank­anum var haft sam­band við Gunn­hildi Örnu eftir að nið­ur­staða kæru­nefnd­ar­innar, sem sagði að Seðla­bank­inn hefði brotið lög með því að snið­ganga mun hæf­ari konu, Gunn­hildi Örnu, við að skipa minna hæf­ari karl í starfið. Ekki kemur fram í svari Seðla­bank­ans hvort að hann hafi leitað sátta eða ætli að semja um greiðslu skaða­bóta.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu á mið­viku­dag að Seðla­bank­inn ætli að una nið­ur­stöð­unni. Í aðdrag­anda birt­ingar hennar var fyr­ir­spurn beint til bank­ans og hann spurður hvort hann ætl­aði að grípa til ein­hverra breyt­inga á verk­lagi sínu við ráðn­ingar í störf í ljósi þess að þetta var í þriðja sinn frá árinu 2012 sem að Seðla­banki Íslands ger­ist brot­legur við jafn­rétt­islög. Þá barst ekki beint svar við þeirri spurn­ingu heldur sagð­ist bank­inn ætla að fara „yfir málið með það fyrir augum að tryggja að farið verði að þeim við­miðum sem um þetta gilda. Annað er ekki hægt að segja að svo stöddu.“

Í gær barst nýtt svar við fyr­ir­spurn­inni. Í því sagð­ist bank­inn að verk­ferlar í þessum efnum hafa verið styrktir í kjöl­far nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Mælanlegar hæfniskröfur settar fram

Um er að ræða starf við nýsköpun í upp­lýs­inga- og kynn­ing­ar­starfi bank­ans sem aug­lýst var lausn umsóknar í apríl í fyrra.

Þær hæfn­is­kröfur sem til­teknar voru í aug­lýs­ing­unni að leitað væri eftir voru eft­ir­far­andi: Háskóla­menntun sem nýt­ist í starfi; reynsla af kynn­ing­ar­starfi og fjöl­miðlun; góðir sam­skipta­hæfi­leikar; góð kunn­átta og rit­færni í íslensku og ensku; góð þekk­ing á efna­hags- og pen­inga­málum og fjár­mála­mörk­uðum er kostur; drif­kraftur, frum­kvæði og geta til að vinna fag­lega og sjálf­stætt. Alls sóttu 51 um starfið. Tveir drógu síðar umsókn sína til baka.

Í júní 2019 var greint frá því Stefán Rafn Sig­ur­björns­son, þá frétta­maður hjá Sýn, hefði verið ráð­inn í starfið.

Gunn­hildur Arna krafð­ist rök­stuðn­ings og ýmissa gagna í kjöl­farið og kærði loks ráðn­ing­ar­ferlið til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Hæfari á öllum mælanlegum sviðum

Hún komst að nið­ur­stöðu 19. des­em­ber síð­ast­lið­inn en birti hana ekki fyrr en í byrjun lið­innar viku. Að mati kæru­nefnd­ar­innar stóð Gunn­hildur Arna framar Stefáni Rafni í menntun og reynslu af kynn­ing­ar­starfi og fjöl­miðlum. Hún taldi Seðla­bank­ann ekki hafa tek­ist að sýna fram á að Stefán Rafn stæði henni framar varð­andi tungu­mála­kunn­áttu né þekk­ingu á efna­hags- og pen­inga­málum og fjár­mála­mörk­uðum. „Jafn­framt væri að mati kæru­nefnd­ar­innar nær­tæk­ast að álykta sem svo að kær­andi hafi staðið karl­inum framar varð­andi þekk­ingu á efna­hags- og pen­inga­málum og fjár­mála­mörk­uðum í ljósi MBA-mennt­unar hennar, enda hefur ekki verið sýnt fram á nokkuð um þekk­ingu eða reynslu karls­ins að þessu leyti sem gæti gert það að verkum að hann yrði met­inn skör hærra en kær­andi.“

Gunn­hildur Arna stóð því framar í öllum hæfn­is­at­riðum sem voru mæl­an­leg. Í þeim hug­lægu þáttum sem taldir voru til í aug­lýs­ing­unni, sem voru sam­skipta­hæfi­leikar, drif­kraftur, frum­kvæði og geta til að vinna fag­lega og sjálf­stætt, taldi kæru­nefndin að Seðla­bank­inn hefði látið nægja að fjalla um hæfni þess sem ráð­inn var á fremur almennan hátt, einkum með vísan til þess að frammi­staða hans í við­tölum hafi verið mjög góð og umsagnir um hann hafi verið góðar. Sér­stak­lega þegar horft væri til þess að engra umsagna var leitað um Gunn­hildi Örnu auk þess sem frammi­staða Stefáns Rafns í við­tölum gat ekki, án frek­ari rök­stuðn­ings um frammi­stöðu kær­anda, hróflað við þeirri nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar að ósannað telst að Gunn­hildur Arna hefði staðið Stefáni Rafni að baki í við­tali.

Að end­ingu til­tók kæru­nefndin í nið­ur­stöðu sinni að Gunn­hildi Örnu hafi ekki verið gef­inn kostur á að þreyta verk­efni sem Stefáni Rafni og tveimur öðrum umsækj­endum var falið að þreyta, en góð úrlausn hans á því var notuð til að rök­styðja ráðn­ing­una. „Er því ekki unnt að draga þá ályktun að heild­stæður sam­an­burður hafi í raun farið fram af hálfu kærða á kær­anda og þeim karli sem starfið hlaut, enda þótt hlut­lægir þættir hafi bent til þess að hún stæði karl­inum framar.“

Það var því nið­ur­staða kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála að Seðla­bank­inn hefði ekki getað sýnt fram á að aðrar ástæður en kyn­ferði hefði legið til grund­vallar ákvörðun um ráðn­ingu í starf upp­lýs­inga­full­trúa á sviði alþjóða­sam­skipta og skrif­stofu seðla­banka­stjóra. Með því hefði Seðla­bank­inn brotið gegn jafn­rétt­islögum.

Vonar að bankinn fari að landslögum

Gunn­hildur Arna sagði í stöðu­upp­færslu sem hún birti á Facebook í vik­unni að hún hefði kosið ann­ars konar athygli en að hún hafi farið þessa leið, að kæra ferlið, í þeirri von að úrskurð­ur­inn breyti starfi bank­ans og að fag­legt ráðn­ing­ar­ferli verið tekið upp innan hans. „Ég vona einnig að bank­anum vegni betur í ákvörð­unum sínum undir nýrri yfir­stjórn og fari að lands­lögum. Ég vona að á kom­andi tímum verði fólk metið að verð­leikum.“

Þetta er í þriðja sinn frá árinu 2012 sem Seðla­banki Íslands ger­ist brot­legur við jafn­rétt­islög. Öll brotin áttu sér stað áður en að Ásgeir Jónsson, sem tók við emb­ætti seðla­banka­stjóra af Má Guð­munds­syni í ágúst 2019, tók við starf­inu.

Eftir sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um liðin ára­mót þá starfa nú þrír karlar á upp­lýs­inga­sviði bank­ans, Stefán Jóhann Stef­áns­son, sem er titl­aður rit­stjóri, Sigurður Val­geirs­son, sem var upp­lýs­inga­full­trúi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, og Stefán Rafn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár