Svindlið hjá Volkswagen dregur markaði í svaðið

Hlutabréfa­markaðir um nær allan heim hafa sýnt rauðar tölur lækkunar í dag og er svindli þýska bíla­fram­leiðandans Volkswagen kennt um, að því er fram kemur í umfjöllun Wall Street Journal. S&P 500 vísitalan í Banda­ríkjunum hefur lækkað um 1,5 prósent þegar þetta er ritaði, DAX vísitalan í Þýska­landi lækkaði um tæplega þrjú prósent og Nikkei vísitalan í Japan um tæplega tvö prósent.

Volkswagen hefur nú viðurkennt að hafa framleitt ellefu milljónir bíla og selt um allan heim með kerfi sem var ætlað að svindla á útblásturs­prófunum. Í fyrstu náðu innkallanirnar á bílum fyrir­tækisins til 482 dísel bíla sem komu á götuna á árunum 2009 til 2015 í Banda­ríkjunum, en nú er ljóst að málið er mun víðtækara.

Markaðs­virði Volkswagen hefur hrunið um þriðjung á tveimur dögum og gæti fyrir­tækið fengið himinháar sektir vegna svindlsins. Bandarísk yfirvöld vilja sekta um 37.500 Bandaríkja­dali fyrir hvert tilvik, og í tilfelli fyrstu tilvik­anna sem uppgvötuðust þá gat sektin orðið 18 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 2.300 milljörðum króna.

Ljóst er að upphæðin getur orðið mun hærri, og jafnvel gert útaf við fjárhags­stöðu bíla­risans. Þá hafa bandarísk yfirvöld tilkynnt um að sakamála­rannsókn sé hafin en svindl sem þetta er litið mjög alvarlegum augum í Banda­ríkjunum og gætu stjórn­endur félagsins átt yfir höfði sér margra ára fangelsi.

Þess er nú beðið að staða mála hjá öðrum bíla­fram­leiðendum verði greind, en grunur leikur á því að fleiri fram­leiðendur hafi einnig beitt svindli á útblásturs­prófunum, en þau tilfelli hafa ekki verið staðfest.


FT News: Volkswagen scandal causes car industry turmoil http://t.co/JonWwrfZls


— Financial Times (@FinancialTimes) September 22, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár