Verður kosningaaldur lækkaður í þetta sinn?

Frumvarp um lækkun kosn­inga­ald­urs fyrir sveitar­stjórn­ar­kosn­ingar í 16 ár hefur verið lagt fram á Alþingi í annað sinn.

Frum­varp til laga um lækkun kosn­inga­ald­urs fyrir sveita­rstjórn­ar­kosn­ingar í 16 ár hefur verið lagt fram í annað sinn. Andrés Ingi Jóns­son þing­maður Vinstri grænna er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins en nú er það lagt fram af full­trúum allra flokka nema Mið­flokks og Flokki fólks­ins.

Í mars síð­ast­liðnum náð­ist ekki að greiða atkvæði um frum­varp um lækkun kosn­inga­ald­urs á þingi vegna mál­þófs og urðu því ekki breyt­ingar á lögum fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar sem haldnar voru í lok maí á þessu ári.

Andrés Ingi segir í sam­tali við Kjarnann að nú hafi þingið heilan þing­vetur til að ná þessu í gegn og því sé tíma­pressan minni en síð­ast.

Ýmis skyld þing­mál hafa áður verið lögð fram á þingi. Þau hafa miðað að því að lækka kosn­inga­aldur almennt, þ.e. bæði í alþing­is­kosn­ingum og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, úr 18 árum í 16 ár. Hér er hins vegar lagt til að stíga skrefið til hálfs með því að leggja ein­ungis til breyt­ingar á kosn­inga­aldri í kosn­ingum til sveit­ar­stjórna sem krefst aðeins ein­faldrar laga­breyt­ingar.

9.000 þúsund manns fá tækifæri til að kjósa

Við umfjöllun frum­varps­ins síð­asta vetur komu fram þau sjón­ar­mið að of skammur tími væri til stefnu til að und­ir­búa breyt­ing­una fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar það sama vor og var þriðju umræðu því ekki lokið. Málið er nú end­ur­flutt með breyt­ingum sem þá voru sam­þykktar við aðra umræðu, segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Í henni kemur jafn­framt fram að frum­varpið sé lagt fram til að styðja við lýð­ræð­is­þátt­töku ungs fólks og auka tæki­færi þess til að hafa áhrif á sam­fé­lagið sem virkir og ábyrgir þátt­tak­endur. Verði frum­varpið að lögum munu ald­urs­mörk kosn­ing­ar­réttar í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum mið­ast við 16 ára aldur í stað 18 ára eins og nú er. Muni þá um 9.000 manns fá tæki­færi til að hafa á kjör­degi áhrif á mik­il­vægar ákvarð­anir sem varða líf og umhverfi þeirra sem ekki njóta þess­ara grund­vall­ar­rétt­inda lýð­ræð­is­ins að óbreyttum lögum.

„Dræm og dvín­andi þátt­taka ungs fólks í kosn­ingum til lög­gjaf­ar­þinga og sveit­ar­stjórna er víða stað­reynd og veldur áhyggjum af fram­tíð lýð­ræðis. Þykja líkur til þess að fólk geti orðið afhuga stjórn­mála­þátt­töku og snú­ist af braut lýð­ræð­is­legrar stefnu­mót­unar og ákvarð­ana­töku, þar sem málum er ráðið til lykta með umræðu og síðan kosn­ingum, ef ekki gefst kostur á þátt­töku jafn­skjótt og vit­und ein­stak­lings­ins um áhrifa­mátt sinn og ábyrgð á eigin vel­ferð og sam­fé­lags­ins hefur vaknað. Að sjálf­sögðu eiga hér einnig við hin almennu sjón­ar­mið um lýð­ræð­is­lega fram­kvæmd, þ.e. að mikil og víð­tæk þátt­taka í kosn­ingum gefi traustasta vit­neskju um vilja borg­ar­anna og því mik­il­vægt að sem allra flestir njóti atkvæð­is­réttar,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kosningaaldri síðast breytt árið 1984

Kosn­inga­aldri var síð­ast breytt á Íslandi árið 1984 þegar hann lækk­aði úr 20 árum í 18 ár. Það gerð­ist í sam­vinnu allra flokka á þingi, enda í takt við þróun sem fór af stað nokkru fyrr í mörgum nágranna­löndum Íslands. Fyrsta ríkið til að taka upp 18 ára kosn­inga­aldur var Tékkóslóvakía árið 1946 en árið 1970 urðu Bretland og Þýska­land fyrstu ríkin í Vestur-Evrópu til að lækka kosn­inga­ald­ur­inn í 18 ár.

Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að nið­ur­stöður íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar hafi gefið sterkar vís­bend­ingar um minnk­andi kosn­inga­þátt­töku ungs fólks frá því að rann­sóknin hófst árið 1983.

Hagstofa Íslands hefur kallað eftir upp­lýs­ingum frá kjör­stjórnum um kjör­sókn eftir fæð­ing­ar­ári við almennar kosn­ingar og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur frá og með árinu 2014. Þar með hefur verið hægt að greina nákvæm­lega þá stöðu sem íslenska kosn­inga­rann­sóknin hafði áður aðeins gefið til kynna. Nið­ur­stöður Hagstofu Íslands eftir þær kosn­ingar sem fram hafa farið und­an­farin ár, þ.e. sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2014 og 2018, for­seta­kjör 2016 og alþing­is­kosn­ingar 2016 og 2017, stað­festa það sem kosn­inga­rann­sóknin hafði dregið fram, þ.e. að kosn­inga­þátt­taka ungs fólks er minni en meðal eldri kjós­enda. Þetta var sér­stak­lega skýrt í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum þar sem kosn­inga­þátt­taka fólks undir þrí­tugu var undir 50 pró­sent þótt með­al­kjör­sókn hafi verið 67 pró­sent.

Verður að grípa til margþættra aðgerða

Í grein­ar­gerð­inni segir að til að bregð­ast við dræmri kosn­inga­þátt­töku meðal ungs fólks sé nauð­syn­legt að grípa til marg­þættra aðgerða. Eitt dæmi þar um sé verk­efnið „Kosn­inga­vakn­ingin: #ÉGKÝS“, sem Lands­sam­band ung­menna­fé­laga og Samband íslenskra fram­halds­skóla­nema halda utan um. Átakið miðar að því að efla lýð­ræðis­vit­und og hvetja ungt fólk til að taka upp­lýsta ákvörðun um ráð­stöfun atkvæðis síns.

Fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar var þetta meðal ann­ars gert með því að halda fundi ungs fólks um allt land með fram­bjóð­endum og skipu­leggja skugga­kosn­ingar í fram­halds­skólum. Vel tókst til við átakið fyrir kosn­ing­arnar haustið 2016 en í skýrslu sem kynnt var í sept­em­ber 2017 kemur fram að þeir nem­endur sem tóku þátt í skugga­kosn­ingum voru lík­legri til að kjósa í alþing­is­kosn­ingum en þeir sem ekki tóku þátt í skugga­kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár