Mælt fyrir því að kosningaaldur verði 16 ár

Í dag munu 14 þing­menn úr öllum flokkum mæla fyrir frum­varpi þar sem lagt er til að kosn­inga­ald­ur­inn verði lækk­aður niður í 16 ár í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Mælt verður fyrir frum­varpi til laga um breyt­ingu á lögum um kosn­ingar til sveit­ar­stjórna á Alþingi í dag, þar sem lagt er til að kosn­inga­aldur verði lækk­aður niður í 16 ár.

Áður hefur verið miðað að því að lækka kosn­inga­aldur almennt úr 18 árum í 16 ár en hér er hins vegar lagt til að stíga skrefið til hálfs með því að breyta kosn­inga­aldri í kosn­ingum til sveit­ar­stjórna sem krefst aðeins ein­faldrar laga­breyt­ingar.

Andrés Ingi Jónsson, fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins og þing­maður Vinsti grænna, segir í sam­tali við Kjarnann að málið hafi verið inni á þingi í einni mynd eða annarri í um 11 ár. Það hafi tekið breyt­ingum í áranna rás en nú séu flutn­ings­menn að ein­beita sér að sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu.

Hann bætir því við að ef frum­varpið verður að lögum þá sé hægt að gera þessar breyt­ingar fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor.

„Í fram­hald­inu er síðan hægt að taka stóra stökkið með stjórn­ar­skrár­breyt­ingum,“ segir hann og bendir á að þessi leið hafi verið farin í mörgum löndum, til að mynda í Skotlandi og Aust­ur­ríki.

9.000 manns fá að kjósa

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að það sé lagt fram til að styðja við lýð­ræð­is­þátt­töku ungs fólks og auka tæki­færi þess til að hafa áhrif á sam­fé­lagið sem virkir og ábyrgir þátt­tak­endur. „Verði frum­varpið að lögum munu ald­urs­mörk kosn­ing­ar­réttar í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018 verða við 16 ára aldur í stað 18 ára eins og nú er. Munu þá nærri því 9.000 manns fá tæki­færi til að hafa á kjör­degi áhrif á mik­il­vægar ákvarð­anir sem varða líf þeirra og umhverfi sem ekki njóta þess­ara grund­vall­ar­rétt­inda lýð­ræð­is­ins að óbreyttum lögum,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Jafn­framt segir að dræm og dvín­andi þátt­taka ungs fólks í kosn­ingum til lög­gjaf­ar­þinga og sveit­ar­stjórna sé víða stað­reynd og valdi áhyggjum af fram­tíð lýð­ræðis. Þyki líkur til þess að fólk geti orðið afhuga stjórn­mála­þátt­töku og snú­ist af braut lýð­ræð­is­legrar stefnu­mót­unar og ákvarð­ana­töku, þar sem málum er ráðið til lykta með umræðu og síðan kosn­ingum, ef ekki gef­ist kostur á þátt­töku jafn­skjótt og vit­und ein­stak­lings­ins um áhrifa­mátt sinn og ábyrgð á eigin vel­ferð og sam­fé­lags­ins hefur vaknað.

„Að sjálf­sögðu eiga hér einnig við hin almennu sjón­ar­mið um lýð­ræð­is­lega fram­kvæmd, þ.e. að mikil og víð­tæk þátt­taka í kosn­ingum gefi traustasta vit­neskju um vilja borg­ar­anna og því mik­il­vægt að sem allra flestir njóti atkvæð­is­réttar,“ segir enn fremur í grein­ar­gerð­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár