Lesendum Morgunblaðsins og Fréttablaðsins fækkað um 20 prósent frá miðju ári 2019

Lestur Frétta­blaðsins hefur helmingast á rúmum áratug og minnkað um 20 prósent frá því nýir eigendur keyptu blaðið um mitt ár 2019. Þróun á lesenda­hópi Morgun­blaðsins er nánast sú sama. Mikið tap er á rekstri beggja dagblaða.

Alls lásu 8,5 prósent full­orðinna lands­manna undir fimmtugu Morgun­blaðið í ágúst­mánuði. Lesturinn dróst saman um 0,9 prósentu­stig í mánuðinum eða um tæp tíu prósent. Fyrir tólf árum, þegar sá hópur sem er stærstur á meðal eigenda útgáfu­félags Morgun­blaðsins keypti það, var lesturinn hjá þessum hópi 32,8 prósent. Hann er því nú rétt um fjórðungur þess sem hann var þá.

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Gallup um lestur dagblaða á Íslandi.

Heildar­lestur Morgun­blaðsins fór í fyrsta sinn undir 19 prósent í síðasta mánuði og mældist 18,9 prósent. Lesendur voru 42,7 prósent lands­manna þegar nýju eigendurnir tóku við árið 2009. Frá byrjun árs í fyrra hefur öllum lesendum Morgun­blaðsins fækkað um fimmtung. Lestur Morgun­blaðsins hefur aldrei verið minni.

Þessi þróun, hríð­minnkandi lestur, hefur átt sér stað þrátt fyrir að Morgun­blaðið hafi síðastliðin ár verið fríblað á fimmtudögum. Í því felst að blað er í aldreifingu þá daga og fer inn á heimili tugþúsunda sem eru ekki áskrifendur. Almenn áskrift að Morgun­blaðinu kostar í dag 7.982 krónur á mánuði, eða 95.784 krónur á ári.

Lestur Fréttablaðsins á leiðinni undir 30 prósent

Staðan er lítið betri hjá hinu stóra dagblaðinu á Íslandi, Frétta­blaðinu, sem er frídreift í 80 þúsund eintökum á öll heimili á höfuð­borgar­svæðinu og Akureyri fimm daga vikunnar. Nú lesa 22,2 prósent lands­manna í aldurs­hópnum 18-49 ára það blað en í byrjun árs 2009 lásu 65,1 prósent íbúa á Íslandi Frétta­blaðið. Lesturinn nú er því þriðjungur þess sem hann var fyrir rúmum tólf árum og hefur aldrei verið minni.

Alls lesa 30,9 prósent allra lands­manna Frétta­blaðið og þeim hefur fækkað um næstum þrjú prósentu­stig það sem af er ári. Haldi sú þróun áfram út þetta ár mun heildar­lestur Frétta­blaðsins fara undir 30 prósent fyrir áramót. Fyrir rúmum áratug, vorið 2010, mældist lestur blaðsins 64 prósent. Hann hefur því helmingast á þeim tíma.

Áframhaldandi mikið rekstrartap

Kjarninn greindi frá því í síðasta mánuði að rekstrartap Árvakur útgáfu­félags Morgun­blaðsins, mbl.is og K100, hefði verið 210,3 milljónir króna. Það var aðeins minna rekstrartap en árið áður þegar útgáfu­félagið tapaði 245,3 milljónum króna.

Sá munur var á rekstrar­umhverfi einka­rekinna fjölmiðla árið 2020 miðað við árið 2019 að í fyrra ákvað Alþingi að veita rekstrar­stuðning til þess að mæta efnahags­áhrifum heims­faraldursins, og studdi við fyrirtæki með ýmsum öðrum hætti.

Rekstrar­styrkurinn sem Árvakur fékk nam alls 99,9 milljónum króna, en eitt hundrað milljóna króna þak var á styrkjum til hvers fjölmiðla­fyrirtækis. Því má ætla að rekstrar­tapið hafi verið yfir 300 milljónir króna ef ekki hefði verið fyrir rekstrar­styrkinn.

Árvakur fékk svo úthlutað rúmlega 81 milljón króna styrk úr ríkis­sjóði fyrr í þessum mánuði þegar rekstrar­styrkjum til einka­rekinna fjölmiðla var úthlutað. Kjarninn var á meðal annarra fjölmiðla sem fengu styrk.

Tapað yfir 2,5 milljörðum

Í ársreikningi Árvakurs segir að á árinu 2020 hafi verið „unnið að hagræðingar­aðgerðum í rekstri félagsins til að mæta þeim rekstrar­vanda sem einka­reknir fjöl­miðlar hér á landi búa við og mun verða haldið áfram á þeirri vegferð til að ná jafnvægi í rekstri þess, en hvenær það næst er erfitt að meta með áreiðanlegum hætti. Það er mat stjórn­enda félagsins að ekki sé vafi á rekstrar­hæfi félagsins eins og staða þess er í dag. En gangi áætlanir stjórn­enda ekki eftir ríkir ákveðin óvissa um rekstrar­hæfi félagsins til lengri tíma.“

Sá eigenda­hópur sem tók við Árvakri árið 2009 hefur samtals lagt félaginu til 1,9 milljarða króna í nýtt hlutafé á rúmum áratug, síðast 300 milljónir króna á árinu 2019. Samanlagt endanlegt tap félagsins á sama tímabili er yfir 2,5 milljörðum króna.

Stærsti eigandinn er Guðbjörg Matthíasdóttir og börn hennar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfélag Vestmanna­eyja. Samanlagt á sá hópur 25,5 prósent hlut. Næst stærsti eigandinn eru Íslenskar Sjávar­afurðir, í eigu Kaup­félags Skagfirðinga, með 19,4 prósent eignar­hlut.

Miklir fjármunir settir inn í reksturinn

Í júní 2019 keypti athafna­maðurinn Helgi Magnússon helmings­hlut í útgáfu­félagi Frétta­blaðsins, Torgi. Kaup­verðið var trúnaðarmál en í október keyptu Helgi og samstarfs­menn hans, meðal annars ritstjórinn Jón Þórisson, hinn helminginn í útgáfunni auk þess sem sjón­­­varps­­­stöð­inni Hring­braut var rennt inn í rekst­­­ur­inn. Aftur var kaup­verðið sagt trúnaðarmál. Eignar­haldið á Torgi hefur verið í félagi sem heitir HFB-77 ehf. Það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­ónir króna í fyrra. Torg er eina þekkta eign félags­­ins og var keypt á síð­­asta ári. Í desember 2020 var svo greint frá því að Helgi hefði keypt nýtt hlutafé í Torgi fyrir 600 milljónir króna.

Miðað við þær upp­lýs­ingar má ætla að Helgi og við­skipta­fé­lagar hans hafi sett um 1,2 millj­arð króna í að ann­ars vegar kaupa Torg og hins vegar að styrkja rekstur útgáfu­fé­lags­ins.

Þegar nýju eigendurnir komu að Frétta­blaðinu var því dreift sex daga vikunnar í 85 þúsund eintökum ókeypis á heimili á höfuð­borgar­svæðinu og Akureyri. Í fyrra var ákveðið að hætta útgáfu mánudags­blað og fækka þannig útgáfu­dögum um einn. Dreifingin hefur auk þess dregist saman úr 85 í 80 þúsund eintök á dag.

Önnur breyta sem gæti haft áhrif á lestur Frétta­blaðs­ins eru breytt lög um póst­þjón­ustu, sem sam­þykkt voru 2019, og gera frí­blöðum erf­ið­ara fyrir en áður að ná augum fólks. Í þeim er réttur neyt­enda til að afþakka frí­blöð tryggð­ur. Á grunni þeirra laga réðst Reykja­vík­ur­borg í útgáfu á svoköll­uðum afþökk­un­ar­lím­miðum fyrir Reyk­vík­inga, sem sendir voru á öll heim­ili á þessu stærsta dreif­ing­ar­svæði frí­blaða á Íslandi.

Lestur Frétta­blaðsins hefur dregist saman um fimmtung frá því að nýir eigendur komu að blaðinu.

Hundruð milljóna tap

Tap Torgs á árinu 2019 var 212 millj­­­ónir króna en þar var búið að reikna með 50 millj­­óna króna styrk út rík­­is­­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla. Þeir styrkir voru aldrei greiddir út, enda frum­varp um þá ekki sam­­þykkt. Hins vegar voru greiddar út sér­­stakir neyð­­ar­­styrkir vegna kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins sem á end­­anum skil­uðu Torgi 64 millj­­ónum króna.

Torg hefur ekki skilað inn ársreikningi vegna ársins 2020 þrátt fyrir að lögbundinn frestur til þess hafi runnið út um síðustu mánaðarmót. Í nafn­lausum skoðana­pistli sem birtist í Viðskipta­blaðinu í byrjun mánaðar var því haldið fram að rekstrar­tapið í fyrra hefði numið tæpum hálfum milljarði króna.

Ritstjóra­skipti urðu fyrir skemmstu hjá Frétta­blaðinu þegar Sigmundur Ernir Rúnarsson tók við af Jóni Þórissyni.

Torg fékk úthlutað rúmlega 81 milljón króna styrk úr ríkis­sjóði fyrr í þessum mánuði þegar rekstrar­styrkjum til einka­rekinna fjölmiðla var úthlutað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár