Ríkasta eitt prósent mannkyns á helming alls auðs í heiminum

Ríkasta eitt prósent jarðarbúa á um 48 prósent alls auðs í heiminum. Þessi litli hópur er auk þess að verða ríkari með hverju árinu. Fátækari helmingur jarðarbúa á hins vegar minna en eitt prósent alls auðs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu svissneska bankans Credit Suisse um auð heimsins.

Samkvæmt skýrslunni er saman­lagður auður heims­byggðarinnar 263 trilljónir dala, um 28,6 milljónir milljarða íslenskra króna. Hann hefur tvöfaldast síðan árið 2000. Til að teljast með ríkari helming heimsins þarf hins vegar ekki að eiga mikið, alls um 3.650 dali, um 442 þúsund krónur, og er þá meðtalið virði fasteigna. Til að komast í efstu tíu prósentin þarf einstaklingur hins vegar að eiga meira en 77 prósent og yfir 798 þúsund dali, um 97 milljónir króna, til að tilheyra auðugasta efsta prósentinu. Flestir sem tilheyra ríkustu tíu prósentunum koma frá Banda­ríkjunum. Japanir eru í öðru sæti og Kínverjar í því þriðja, á undan löndum eins og Frakk­landi, Þýska­landi, Ítalíu og Bretlandi.

Auður heimsins orðin meiri en fyrir bankakreppu


Alls óx auður heims­byggð­ar­innar um 20,1 trilljón dala á milli ára, um 2,4 millj­ónir millj­arða króna, og er það mesti vöxtur sem mælst hefur síðan árið 2007. Auðurinn er nú um 20 pró­sent meiri en hann var þegar best lét fyrir alþjóð­legu banka­krepp­una.

Ójöfnuður eykst hratt í flestur vanþróaðri ríkjum en innan G-7 ríkjanna, samstarfs­vettvangs þróuðustu ríkja veraldar, jókst ójöfnuður einungis í Bretlandi á tíma­bilinu 2000 til 2014, samkvæmt skýrslu Credit Suisse.

Það eru hins vegar ekki allir sammála þessum stað­hæfingum. The Guardian sagði til dæmis frá því nýverið að Oxfam-samtökin, sem berjast gegn fátækt í heiminum, hafi birt niður­stöður rannsókna sinna í byrjun þessa árs sem sýndu að 85 auðugustu eintaklingar heims eigi samtals um eina trilljón dala. Það er jafn mikið og fátækast 3,5 milljarður jarðarbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár