Kæra vindorkufyrirtæki vegna dauða hafarna

Vind­myllurnar limlesta og valda dauða fjölda fugla, segja samtök íbúa á norskri eyju, íbúa sem töpuðu barátt­unni við vind­myllurnar en hafa nú kært orku­fyrirtækið.

Átta myllur eru í vindorkuverinu á Haramseyju. Þær sjást víða að.
Átta myllur eru í vind­orku­ver­inu á Hara­ms­eyju. Þær sjást víða að. Mynd: Haram Kraft

Að minnsta kosti tveir hafernir hafa drepist í árekstrum við vind­myllur á hinni norsku Haramseyju úti fyrir Álasundi. Íbúa- og náttúru­verndar­samtök sem börðust gegn því að vind­orkuver yrði reist á eyjunni, hafa kært vind­orku­fyrirtækið Harams Kraft fyrir brot á lögum um dýra­velferð og lögum um verndun líffræði­legs fjöl­breytileika. Krefjast samtökin þess að yfirvöld rannsaki hin meintu brot á grund­velli sömu laga. Þess er jafnframt krafist að forsvars­menn fyrir­tækisins verði ákærðir fyrir vanrækslu sem valdið hefði dauða hafarnanna.

Talsmenn Harams Kraft, dóttur­félags Zephyr, hafa svarað því til að á tveggja vikna fresti sé leitað með hundum á virkjunar­svæðinu, líkt og yfirvöld kröfðust við útgáfu framkvæmda­leyfa. Það vill hins vegar ekki tjá sig um hvernig brugðist er við tilkynningum um slasaða fugla.

Íbúa­samtökin segja að fuglar særist, örkumlist og drepist með reglu­bundnu millibili og í miklum mæli vegna vind­myllanna. Þau telja að vöktun virkjunar­aðilans sé ekki í samræmi við lög.

Vind­orkuverið á Haramsfjalli hóf að rísa í lok maí í fyrra. Íbúa­samtökin höfðu barist gegn byggingu þess fyrir dómstólum en allt kom fyrir ekki. Átta 150 metra háar vind­myllur standa nú á fjallinu.

Á þessu sama fjalli eru tvö friðlönd fyrir fugla. Svæðið er ennfremur vinsælt til útivistar.

Samtökin vilja að Harams Kraft verði gert að grípa til aðgerða til að draga eins mikið og hægt er úr árekstrum fugla á vind­myllurnar. Þau hafa m.a. bent á að á öðru svæði, Smøla, hafi spaðar myllanna verið málaðir svartir.

„Málið er nú komið til lögreglunnar og þá kemur í ljós hversu hátt Hamars-eyja er skrifuð á forgangs­listanum,“ sagði í frétta­tilkynningu frá íbúa­samtökunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár