„Þeir eru að eyðileggja eyjuna okkar“

Deilum um byggingu átta 150 metra háa vindmylla á norskri eyju er ekki lokið þó að andstæðingar vind­orkuversins hafi tapað enn einu dóms­málinu. Þeir segja ekki í boði að gefast upp. Deilurnar hafa klofið fámennt samfélagið.

Tölvuteiknuð mynd af vindorkuvirkjuninni á Harams-fjalli.
Tölvu­teiknuð mynd af vind­orku­virkj­un­inni á Harams-fjalli. Mynd: Af vefsíðu Haram Kraft AS

Norðmenn eru þekktir fyrir að taka þjóð­hátíðardag sinn alvarlega, klæðast þjóð­búningum, koma saman og síðast en ekki síst: Flagga. Á þjóð­hátíðar­deginum þetta árið, hinn 17. maí, var hins vegar ekki flaggað við hvert hús á Haramseyju og á nálægum eyjum úti fyrir Álasundi. Hluti eyja­skeggja var einfald­lega ekki í hátíða­skapi heldur miklu frekar sorg­mæddur. Sorgina má rekja til þess að nýverið tapaði hópur þeirra máli sem höfðað var til að reyna að koma í veg fyrir að vindorku­virkjun með átta 150 metra háum vind­myllum verði reist á eyjunni. Á föstudag féll dómur sem staðfesti gildis­töku leyfis til að reisa vind­orkuverið. Því geta framkvæmdir nú hafist af fullum krafti.

Andstæðingar hins fyrir­hugaða vers höfðuðu mál gegn bæði norska ríkinu og framkvæmda­aðilanum, Zephyr (áður Haram Kraft AS). „Öllum þykir vænt um landið sitt, þetta snýst ekki um það,“ hefur norska ríkis­sjónvarpið eftir Lisbeth Marie Austnes, íbúa á eyju skammt frá sem leiðir baráttuna gegn virkjuninni. Hún var ein þeirra sem flaggaði ekki í tilefni þjóð­hátíðar­dagsins líkt og hún er vön. Hún segir marga sorgmædda og að þeir hafi með þessu viljað tjá þær tilfinningar sínar.

Deilurnar um vind­orkuverið hafa klofið samfélagið á Haramseyju sem telur um 350 manns. Andstaðan er ekki minni á eyjunni Longva þar sem nokkru fleiri búa, m.a. Austnes. Þaðan yrði beint útsýni yfir vindorku­garðinn.

Það var þó ekki þannig að allir þeir sem eru á móti verinu hafi sleppt því að flagga. Sumir gerðu það. Aðrir ekki. Fyrir utan vonbrigðin sem fylgja því að hafa tapað dóms­málinu situr baráttu­hópurinn uppi með máls­kostnað, um 1 milljón norskra króna. Þetta er í þriðja sinn sem málið ratar fyrir dóm. Enn geta andstæðingar versins áfrýjað en engin ákvörðun hefur verið tekin um slíkt. Það tekur bæði orku og fjármagn að standa í mála­rekstrinum og nú þarf að sögn Austnes að vega og meta þá þætti. Hins vegar segir hún ekki koma til greina að gefast upp.

„Óréttlætið er of mikið,“ segir hún við norska ríkis­sjónvarpið. „Við munum halda áfram að reyna að finna leiðir út úr þessu.“

Þeir eyja­skeggjar sem hafa barist gegn byggingu virkjunarinnar segja að deilurnar hafi tekið toll af heilsu sumra þeirra. Framkvæmdir, m.a. vega­lagning upp á framkvæmda­svæðið á Haramsfjalli eru þegar hafnar. „Nei, ég er ekki farin að sætta mig við líf hér á eyjunni með vind­myllum,“ segir Austnes. Hún leyfi sér ekki að hugsa þannig – þá fyrst myndi vanlíðanin hellast yfir.

Sveitar­stjórnin í Álasundi hefur beðið framkvæmda­aðilann Zephyr að meta áhrif vind­orkuversins á heilsu fólks. Slík rannsókn er talin kosta um 1 milljón norskra króna sem Zephyr skal að mati stjórn­valda greiða. Þessu fagnar Austnes og segir gott að vita að stjórn­völd taki áhyggjur íbúanna alvarlega.

Leyfi fékkst til byggingar vindorku­garðsins á Haramseyju árið 2009 en það var þó ekki fyrr en tíu árum síðar, árið 2019, sem áformin komust í hámæli og áformunum var ýtt úr vör. Sú ákvörðun kom andstæðingum virkjunarinnar að óvörum. Þeir héldu að horfið hefði verið frá hugmyndinni. Fyrstu hugmyndir gerðu ráð fyrir sextán vind­myllum en síðar kom í ljós að á hluta hins fyrir­hugaða framkvæmda­svæðis var of vinda­samur og því ákveðið að fækka myllunum í átta. Andstæðingar versins höfðuðu mál á þessum grunni, að framkvæmda­leyfið væri ekki í takti við þá framkvæmd sem nú standi fyrir dyrum. Orkan sem verið á að framleiða er t.d. umtals­vert minni en til stóð.

Framkvæmda­stjóri Zephyr í Noregi, Olav Rommetveit, segir framkvæmdirnar hafa verið á teikniborðinu í yfir tvo áratugi. Hann hefur vísað því alfarið á bug að framkvæmda­leyfið nái ekki yfir hin breyttu áform um stærð virkjunarinnar.

Andstæðingar virkjunarinnar segjast hins vegar litlar sem engar upplýsingar hafa fengið á þessum tveimur áratugum fyrr en bréf kom inn um lúguna hjá þeim sem næst búa fjallinu þar sem verið á að rísa. Leyndin er mikil, segja þeir, og svo virðist sem allt hafi verið ákveðið og íbúarnir lítið haft að segja um fram­haldið.

„Þeir eru að eyði­leggja eyjuna okkar,“ segir Lorgen Giske. Margir íbúar hafa að hennar sögn misst traust á yfir­völdum vegna málsins. Hún er meðal kvenna sem mótmæltu komu stórtækra vinnuvéla á bryggjunni og reyndu, með friðsömum hætti, að koma í veg fyrir að þær kæmu í land. Konurnar ganga nær daglega upp á framkvæmda­svæðið og fylgjast með gangi mála. Taka myndir og skrifa hjá sér. Samskipti þeirra við verka­mennina er kurteisisleg.

„Þótt við höfum meirihluta eyja­skeggja með okkur í liði eru nokkrir land­eigendur sem hafa samþykkt framkvæmdina,“ segir Austnes. „Þetta er lítið samfélag sem deilurnar hafa klofið. Við verðum að halda áfram að búa hér saman eftir þetta og við verðum að gæta þess að deilurnar verði ekki of ákafar, passa hvað við segjum og gerum því hér tengjast allir með einhverjum hætti. Þetta er flókið.“

Í nýbirtri umfjöllun Teknisk Ukeblad segir að leitað hafi verið eftir viðbrögð land­eigenda. Þeir hafi hins vegar ekki viljað koma í viðtal. Segjast hafa orðið fyrir áreiti vegna afstöðu sinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár