29 manns slösuðust í sprengingu í Chelsea-hverfinu á Manhattan í New York í nótt. Borgarstjórinn Bill de Blasio hefur staðfest að sprengingin var ekki slys, heldur gerð með vilja, en segir einnig að enn sem komið er bendi ekkert til neinna hryðjuverkatengsla.
Talið er að sprengjunni hafi verið komið fyrir í ruslatunnu á 23. stræti, milli 6. og 7. breiðstrætis. Sprengjan sprakk um klukkan hálfníu í gærkvöldi að staðartíma. Einn er alvarlega en ekki lífshættulega slasaður, flestir hlutu minniháttar skurði og sár af völdum glerbrota.
Lögregla hefur einnig rannsakað annan sprengjubúnað sem fannst í íbúð á 27. stræti, en CNN hefur greint frá því að þar hafi sprengiefni verið komið fyrir í hraðsuðupotti.
Forsetaframbjóðendurnir tveir, Donald Trump og Hillary Clinton, tjáðu sig um málið. Trump var í Colorado og sagði við blaðamenn áður en búið var að staðfesta sprenginguna að hún sannaði að „við þurfum að verða mjög hörð.“ Clinton sagði nauðsynlegt að láta rannsókn málsins leiða hið sanna í ljós, gera allt sem hægt væri til að styðja þá sem voru fyrstir á slysstað og biðja fyrir þeim sem hefðu slasast.
Fyrr í gærdag sprakk sprengja í New Jersey, en de Blasio segir að ekkert bendi til þess að tengsl séu á milli þeirra sprenginga.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir