Bandaríkjamenn ákveða að taka við 100 þúsund flóttamönnum 2017

Stjórn­völd í Banda­ríkjunum hafa skuld­bundið sig til að taka við 100 þúsund flótta­mönnum á ári frá árinu 2017, og er það einkum horft til flótta­manna frá Sýrlandi, Írak og Afgannistan. John Kerry, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, greindi frá þessu í dag eftir fund með þýskum embættis­mönnum.

Banda­ríkin er land þar sem fólk fær annað tækifæri og getur fundin von um betra líf,“ sagði Kerry þegar hann tilkynnti um aukingu á móttöku­kvóta flótta­manna í landinu. Þrátt fyrir aukninguna verður mikið lagt upp úr því að styrkja eftirlit og skoðun á bakgrunns­upplýsingar þeirra sem óska eftir því að fá að koma til landsins, að því er fram á vef New York Times.

Breytingin felur í sér hækkun á flóttamanna­kvótanum úr 70 þúsund í 100 þúsund, en Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, greindi frá því í síðustu viku að stjórn­hygðust taka á móti 10 þúsund flótta­mönnum frá Sýrlandi á næsta ári, til viðbótar við það sem þegar hafði verið ákveðið.

Vanda­málið sem snýr að flótta­mönnum er gríðarlegt að umfangi, en talið er að allt að 25 milljónir manni séu nú flótta frá stríðs­hrjáðum svæðum Sýrlands, Íraks og Afganistan, og hefur myndast mikið mannhaf víða í Evrópu við landamæri, þar sem flótta­menn freista þess að komast á nýjan byrjunar­reit, og hefja nýtt líf.

Eins og greint var frá í gær hafa stjórn­völd á Íslandi ákveðið setja um tvo milljarða króna í málaflokk sem snýr að móttöku flótta­manna, og verður gripið til aðgerða eins fljótt og kostur er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár