Mesti flóttamannavandi síðan í seinni heimstyrjöld - flókin mál útskýrð á einfaldan hátt

Þýska fyr­ir­tækið Kurzgesagt - In a nuts­hell hefur síðan 2013 fram­leitt sjón­rænar skýr­ingar á heims­mál­unum og vís­inda­legum fyr­ir­brigðum og dreift á YouTube. Í vik­unni birti fyr­ir­tækið svo frétta­skýr­ingu um flótta­manna­straum­inn til Evrópu þar sem fjöldi flótta­manna þar er settur í sam­hengi við þann fjölda sem nú flýr átökin í Sýrlandi.

Kjarninn hefur fjallað um þennan mikla flótta­manna­vanda í Evrópu sem þegar er orð­inn sá mesti síðan í seinni heim­styrj­öld­inni. Evr­ópu­lönd hafa átt erfitt með að koma sér saman um stefnu í mál­efnum þessa fólks sem leitar hælis frá heima­land­inu sem er í rúst. Neyð­ar­hróp hafa borist frá syðri landamæra­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) til ann­ara ríkja í álf­unni enda sjá þau sér ekki fært að veita öllu því fólki sem þangað kemur hæli.

Flóttamannavandinn í Evrópu útskýrður


https://youtu.be/RvOnXh3NN9w

Hönn­un­ar­stúd­íóið Kurzgesagt var stofnað árið 2013 af Pilipp Dettmer og Stephan Rether með það að mark­miði að útskýra flókin mál­efni á ein­faldan hátt í stuttum mynd­skeiðum. Á vef­síðu þeirra kurzgesagt.org segj­ast þeir „elska vís­indi, minimal­isma, liti og tón­list“ og þá helst þegar þessu er öllu steypt saman í frá­sögn.

Auðvelt er að týna sér á YouTube-rás fyr­ir­tæk­is­ins þar sem finna má fjölda mynd­banda sem útskýra furðulueg­ustu hluti alheims­ins; hvernig þver­sögn Fermis virkar eða misl­inga, hve veiga­mikil er mannsævi í sam­hengi við sögu mann­kyns og rökin með og á móti kjarn­orku útskýrð.

Hér að neðan má sjá nokkur af mynd­böndum Kurzgesagt. Öll mynd­böndin eru á ensku og hægt að horfa á þau með enskum texta.

Eru stríð úr sögunni?


https://youtu.be/NbuUW9i-mHs

Írak útskýrt — ISIS, Sýrland og stríð


https://www.youtube.com/watch?v=AQPlREDW-Ro

Kjarnorka útskýrð: Hvernig virkar hún?


https://youtu.be/rcOFV4y5z8c

Þrjár ástæður hvers vegna kjarnorka er skelfileg


https://youtu.be/HEYbgyL5n1g

Þrjár ástæður hvers vegna kjarnorka er frábær


https://www.youtube.com/watch?v=pVbLlnmxIbY

Golfstraumurinn útskýrður


https://youtu.be/UuGrBhK2c7U

Bankastarfsemi útskýrð


https://youtu.be/fTTGALaRZoc

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár