Seinfeld hlýtur verðlaun og jarðar auglýsingaiðnaðinn

Grín­goðsögnin Jerry Seinfeld dró auglýsinga­iðnaðinn sundur og saman í háði í síðustu viku þegar iðnaðurinn ákvað að veita honum verðlaun á CLIO verðlaunahátiðinni, sem er hluti af Auglýsinga­vikunni (e. Advertising Week) sem fer fram árlega í New York. Í ræðu sinni, sem vefsíða Business Insider greinir frá, segir Seinfeld meðal annars að honum finnist það góð eyðsla á krafti og orku hjá fólkinu í salnum að eyða ævi sinni í að plata saklaust fólk til að eyða strit­launum sínum í að kaupa gagns­lausa, gæðisrýra og rangt kynnta hluti eða þjónustur. „Ég elska auglýsingar vegna þess að ég elska að ljúga. Í auglýsingum er allt eins og þú óskaðir þess að það væri. Mér er alveg sama þótt það verði ekki þannig þegar ég er búinn að eignast vöruna sem verið er að auglýsa, vegna þess að á milli þess sem ég sé auglýsinguna og þar til ég eignast hlutinn, er ég hamingju­samur. Það er allt sem ég vil,“ sagði Seinfeld.

Seinfeld hlaut verð­launin meðal annars vegna frammistöðu sinnar í auglýsingum fyrir greiðslu­korta­fyrirtækið American Express. Fulltrúar auglýsinga­iðnaðarins, sem voru andlag kaldhæðinnar gagnrýni Seinfeld í þakkar­ræðunni, veltust um af hlátri á meðan að hann lét dæluna ganga. Þakka­ræðuna má sjá í heild sinni hér að neðan.

http://www.youtube.com/watch?v=uHWX4pG0FNY

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár