Greiðslur til allra bankastjóra stærstu bankanna jukust í fyrra

Banka­stjóri Íslands­banka fékk sérstaka yfirvinnu­greiðslu vegna undir­búnings fyrir skráningu á markað. Banka­stjóri Arion banka fékk myndar­lega bónus­greiðslu. Banka­stjóri Lands­bankans fékk hefð­bundna launa­hækkun.

Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Banka­stjórar þriggja stærstu banka lands­ins. Mynd: Samsett

Birna Einars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, fékk samtals 68,6 milljónir króna í laun og mótframlag í lífeyris­sjóð í fyrra, eða 5,7 milljónir króna að meðaltali á mánuði. Á árinu 2020 fékk hún 60,3 milljónir króna í laun eða um fimm milljónir króna á mánuði.

Munurinn á launum milli ára skýrist af sérstakri 10,9 milljón króna greiðslu vegna yfirvinnu sem Birna fékk í tengslum við undir­búning hlutafjár­útboðs og skráningar Íslands­banka á markað í fyrra­sumar. Án hennar hefðu hefðu heildar­laun Birnu lækkað um 2,6 milljónir króna milli ára.

Þetta kemur fram í ársreikningi Íslands­banka sem birtur var í gær. Íslenska ríkið er stærsti eigandi bankans með 65 prósent eignar­hlut.

Fékk bónusgreiðslu

Allir banka­stjórar stóru bankanna fengu hærri greiðslur frá atvinnu­rekanda sínum í fyrra en á árinu 2020. Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, var með 69,8 milljónir króna í laun og mótframlag í lífeyris­sjóð í fyrra, eða 5,8 milljónir króna að meðaltali á mánuði. Arion banki hefur hins vegar innleitt kaupauka- og kaup­réttarkerfi sem umbunar starfs­fólki umtals­vert.

Kaupauka­kerfið gengur meðal annars þannig fyrir sig að ef bankinn nær því markmiði að vera með meiri arðsemi en helstu samkeppnis­aðilar sínar þá fá stjórn­­­­­endur og það starfs­­­­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans allt að 25 pró­­­­­sent af föstum árs­­­­­launum í kaupauka­greiðslu, en í formi hluta­bréfa í bank­­­­­anum sem verða ekki laus til ráð­­­­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­­­­­­­um. Í til­felli Bene­dikts þýðir það kaupauka upp á 17,5 millj­ónir króna en hann var með 69,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð á síð­asta ári.

Samkvæmt kaupréttar­áætlun Arion banka geta allir fastráðnir starfs­menn keypt hlutabréf í bankanum fyrir 1,5 milljón króna einu sinni ári í fimm ár. Þau kaup fara fram á genginu 95,5 krónur, en markaðs­virði Arion banka er 98 prósent yfir því gengi í dag. Það þýðir að bréfin sem starfs­maður kaupir á 1,5 milljónir króna eru þriggja milljón króna virði.

Arion banki er eini kerfis­lega mikilvægi bankinn sem íslenska ríkið á ekki hlut í. Stærstu eigendur bankans eru íslenskir lífeyris­sjóðir.

Með 4,5 milljónir á mánuði

Laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Lands­bank­ans, hækk­uðu um 3,2 millj­ónir króna í fyrra og voru 45,4 millj­ónir króna. Það þýðir að hún var með 3,8 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun að með­al­tali sem er um 263 þús­und krónum hærri laun á mán­uði en hún hafði að með­al­tali á mán­uði á árinu 2020. Laun hennar hækk­uðu því um sjö pró­sent milli ára.

Auk launa og hlunn­inda (sem í fel­ast til að mynda afnot af bif­reið í eigu bank­ans) fékk Lilja greitt mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð upp á 8,7 millj­ónir króna, eða 725 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali. Mót­fram­lags­greiðslur hennar hækk­uðu um 8,8 pró­sent milli ára.

Sam­tals fékk Lilja því 54,4 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóðs á síð­asta ári, eða rúm­lega 4,5 millj­ónir króna á mán­uði.

Lands­bankinn er í eigu íslenska ríkisins.

Allir stóru bank­arnir þrír hafa nú birt árs­reikn­inga sína vegna árs­ins 2021. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra á því ári var 81,2 millj­arðar króna. Á árinu 2020 högnuðust þeir um tæpa 30 milljarða króna. Því var hagnaður þeirra á síðasta ári 170 prósent meiri en á árinu 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár