Ingvar segir skilið við Viðreisn

Ingvar Þór­odds­son gengur til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og kvarn­ast enn úr þing­liði stjórn­ar­flokk­anna. Ágrein­ingur um skatta, rík­is­fjár­mál og sam­göngur á lands­byggð­inni réð úrslitum um ákvörðun hans. Ingvar segir það hafa verið mis­tök að sam­þykkja sam­göngu­á­ætlun án Fjarð­ar­heið­ar­ganga og biður Aust­firð­inga afsök­unar.

Skiptir um flokk
Skiptir um flokk Ingvar Þór­odds­son hefur sagt skilið við Viðreisn og gengið til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Mynd: Viðreisn/Sindri Swan

Ingvar Þór­odds­son, þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis, hefur sagt skilið við Viðreisn og ákveðið að ganga til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann styður ekki lengur rík­is­stjórn­ina.

Rúmur mán­uður er síðan annar þing­maður flokks­ins, Jón Gnarr, sagði sig úr þing­flokki Við­reisnar. Ólíkt Ingvari ákvað Jón að styðja rík­is­stjórn­ina áfram.

„Viðreisn hét því að hækka ekki skatta“
Ingvar Þór­odds­son
þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis

Í yfir­lýs­ingu á Facebook segir Ingvar að stefna rík­is­stjórn­ar­innar gangi gegn þeirri sann­fær­ingu sem hann bauð sig fram með í síð­ustu kosn­ingum og lýsir því yfir að rík­is­stjórnin njóti ekki lengur stuðn­ings hans.

Ingvar gagn­rýnir einkum skatta­hækk­anir rík­is­stjórn­ar­innar, stefnu hennar í rík­is­fjár­málum og for­gangs­röðun í sam­göngu­málum á lands­byggð­inni. Hann segir fjár­laga­frum­varpið fyrir árið 2027 hafa gert sér ljóst að hann og rík­is­stjórnin ættu ekki lengur sam­leið.

„Viðreisn hét því að hækka ekki skatta,“ segir Ingvar og bendir meðal ann­ars á fyr­ir­hug­aða hækkun virð­is­auka­skatts á bað­lón, breyt­ingar á …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Leaving a party without retiring the mandate is voter fraud!
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Mér finnst alveg ótækt þegar þingmenn skipta um flokk á kjörtímabili, sú skoðun hefur ekkert með það að gera hvaða flokkur á í hlut. Hér á landi eru kosnir listabókstafir en ekki persónukjör, því ætti þingmaður að víkja og varamaður að taka við. Ég held að mjög margir þingmenn séu haldnir ranghugmyndum um eigið persónufylgi og telji persónu sína mikilvægari en hún raunverulega er, mig grunar að ansi stór hluti þingmanna séu kjörnir eftir listabókstafnum og þeirra eigin kjósendur gætu ekki einu sinni nefnt þá á nafn, altént töluverður hluti kjósendanna. Svo er hvort þetta fyrirkomulag kosninga sé besta leiðin er allt önnur umræða.
    Það væri að mínu mati ágætt að girða í framtíðinni fyrir svona "Förumenn".
    8
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Gott að losna við þessa laumuframsóknarmenn í heimahaganna hjá framsókn eða sjöllum því ekki vill maður hafa þá við stýrið á þjóðarskútunni, því þá verður fljótt siglt í strand.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flokkaskipti Ingvars

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár