Harðorð yfirlýsing frá Pírötum: Fjármálaráðherra uppvís að spillingu og lygum

„Í siðuðum lýðræðis­ríkjum er það kallað spilling þegar stjórn­málamenn beita opinberu embætti í þágu persónulegra og pólitískra hagsmuna. Þá er það kallað lygi, þegar menn fara vísvitandi með rangt mál.“

Þing­flokkur Pírata hefur sent út harðorða yfir­lýsingu vegna meðhöndlunar Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra á skýrslu um eignir Íslendinga á aflands­svæðum. Þar eru vinnu­brögð hans fordæmd sem og skýringar hans á ástæðum þess að hún var ekki gerð opinber fyrr.

„Þing­flokkur Pírata telur augljóst að fjármála­ráðherra lét persónu­lega og pólitíska hagsmuni sína ganga framar hagsmunum almennings við ákvörðun sína um að birta ekki umrædda skýrslu þegar hann fékk hana afhenta. Í ljósi þess að fjármála­ráðherra er meðal þeirra Íslendinga sem átt hefur félag á aflands­svæði var hann einnig með öllu vanhæfur til að taka ákvörðun um tíma­setningu birtingar skýrslunnar, hvað þá að fresta henni um tæpa fjóra mánuði frá því henni var skilað,“ segir í yfir­lýsingunni.

„Ofan á þetta bætist að ráðherra sagði almenningi ósatt um þetta mál, aðspurður í fréttum Ríkis­útvarpsins. Fyrir liggur að skýrslunni var skilað til ráðuneytis hans þann 13. september síðastliðinn og var ráðherra sérstaka kynnt efni hennar þann 5. október, rúmri viku áður en þingi var slitið fyrir kosningar. Ráðherra getur vart borið fyrir sig minnis­glöpum í þessu samhengi, þar sem hann svaraði sjálfur óundirbúinni fyrir­spurn um málið á Alþingi þann 10. október. Þar fullyrti hann að umrædd skýrsla yrði birt á næstu dögum, vitandi vel að skýrslan væri tilbúin til birtingar. Þetta þýðir að ráðherra getur ekki hafa verið það óljóst, aðspurður af frétta­stofu Rúv, hvort þingi hafi verið slitið eða ekki þegar skýrslan var tilbúin.“

Þing­flokkur Pírata krefst þess að málið verði tekið fyrir í efnahags- og viðskipta­nefnd Alþingis áður en ný ríkis­stjórn tekur formlega við, svo Bjarni Benediktsson gegni enn stöðu fjármála­ráðherra þegar hann svarar fyrir vinnu­brögð sín. „Það mundi veikja stöðu þingsins, sem fer með eftirlits­hlutverk gagnvart ráðherra, að þurfa mögulega að yfirheyra nýjan forsætis­ráðherra vegna verka sem ekki lengur heyra undir hans lögform­legu ábyrgð,“ segir í yfir­lýsingunni. 

Þá er minnt á erindi sem Svandís Svavars­dóttir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna, sendi umboðs­manni Alþingis í dag og umboðs­maður hvattur til að taka málið fyrir. 

Loks segir í yfir­lýsingunni:

„Í siðuðum lýðræðis­ríkjum er það kallað spilling þegar stjórn­málamenn beita opinberu embætti í þágu persónulegra og pólitískra hagsmuna. Þá er það kallað lygi, þegar menn fara vísvitandi með rangt mál. Nú reynir á nýtt þing að sýna að tal okkar allra um ný vinnu­brögð og ábyrgð í stjórn­málum sé ekki orðin tóm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár