Ein írsk landsframleiðsla farin úr markaðsvirði Apple

Markaðs­virði Apple hefur fallið um meira en 250 milljarða Bandaríkja­dala frá því það var hæst. Forstjórinn segir reksturinn traustan, og horfur til framtíðar afar spennandi.

Undan­farnar vikur hafa verið erfiðar fyrir Apple, þrátt fyrir að efnahagur fyrir­tækisins sér heil­brigður og rekstur gangi vel. Það er gengi hluta­bréfa félagsins sem er að valda óstöðug­leika hjá fjár­festum.

Fyrir einu og hálfu ári var markaðs­virði Apple 250 milljörðum Bandaríkja­dala meira en það er nú. Það upphæð sem nemur árlegri lands­framleiðslu Írlands, svo dæmi sé tekið.

Í saman­burði við Ísland, þá er upphæðin meira en tíföld árleg land­framleiðsla Íslands.

Gengi hluta­bréfa félagsins hefur rokið upp á liðnum árum, enda hefur vöxtur félagsins verið með ólíkindum. Árið 2004 námu heildar­tekjur 14 milljörðum Bandaríkja­dala, en tíu árum seinna voru tekjurnar 233 milljarða Bandaríkja­dala (Dalurinn = 122 ISK). Aukningin milli ára hefur síðan verið stöðug, allt þar til í byrjun apríl. Eftir 51 ársfjórðung í röð, þar sem Apple sýndi tekjuvöxt, þá komu loks fram tölur sem sýndu samdrátt.

Aukning markaðs­virðis Apple á síðustu fjórum árum er nú horfin, og virðast fjár­festar hafa áhyggjur af því að vaxtar­skeiðinu sé lokið. Í það minnsta í bili.

Stofn­andinn og forstjórinn heitinn, Steve Jobs, er oft nefndur þessa dagana, þar sem hann var frægur fyrir að koma fram með spennandi nýjungar þegar fyrir­tækið þurfti á því að halda. Nú nýtur hans ekki við, og ekki augljóst hvaða nýjungar eiga að draga vagninn.

Þrátt fyrir að Apple Watch hafi verið ágætlega tekið, þá eru fáir á því að það geti verið vara sem verði viðlíka stór í sölu og i Phone hefur verið á síðustu árum.

Tim Cooke, forstjóri Apple, greindi frá því í viðtali við CNBC í síðustu viku að framtíðin væri björt hjá Apple. Fyrir­tækið ætti svo til alveg eftir að dreifa vörum sínum á risa­stórum markaðs­svæðum eins og Indlandi, þar sem markaðs­hlutdeild fyrir­tækisins væri lítil. Cooke nefndi í viðtalinu að árið 2022 þá verði Indland orðið fjölmennasta ríki heimsins, og milli­stéttin þar væri ört vaxandi. Það væri áskorun fyrir Apple að koma sér betur fyrir í Asíu, ekki síst í Indlandi. Kína væri ekki eina landið sem þyrfti að einblína á, heldur ekki síður önnur lönd í Asíu, þar sem Apple ætti fullt erindi með vörur sínar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár