Geir Haarde flytur erindi hjá umdeildri hugveitu

Sendi­herra Íslands í Banda­ríkjunum fundar með íhalds­samtökunum Heritage Foundation. Samtökin beita sér fyrir markaðs­frelsi og gegn ríkis­afskiptum. Þau þiggja fé frá olíu-, tóbaks- og vopna­fyrirtækjum og berjast gegn aðgerðum sem miða að því að stemma stigu við útblæstri gróðurhúsa­lofttegunda.

Geir H. Haarde, sendi­herra Íslands í Banda­ríkjunum, heldur erindi á samkomu hugveitunnar Heritage Foundation í Washington þann 18. ágúst næst­komandi. Á fundinum verður fjallað um tækifæri Banda­ríkjanna á Norðurslóðum, stefnu­mörkun og starfsemi á svæðinu og möguleika annarra ríkja, einkum samstarfs­aðila Banda­ríkjanna í Norður­skauts­ráðinu.

Á fundinum, sem haldinn er í fyrirlestrasal Heritage-hugveitunnar, taka til máls þau Robert J. Papp, norðurslóða­fulltrúi utan­ríkis­ráðuneytis Banda­ríkjanna, Isaac Edwards, sem starfar fyrir bandaríska þingnefnd um auðlinda- og orkumál og Luke Coffey frá Frelsis­miðstöð Margaret Thatcher. James E. Dean hjá Heritage-hugveitunni stýrir fundinum sem James Jay Carafon boðar til, en hann er fræði­maður hjá Heritage og jafnframt vara­forseti stofnunarinnar Shelby Cullom Davis Institute for National Security and Foreign Policy.

Heritage Foundation er ein áhrifa­mesta hugveita Banda­ríkjanna og ver á ári hverju gríðar­legum fjárhæðum í boðun markaðs­frelsis, lágmarks­ríkis­afskipta, hefð­bundinna fjölskyldu­gilda og sterkra hervarna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár