Sóttkví og skólareglugerð afnumin

Sóttkví hefur verið afnumin. Skóla­reglugerð í grunn- og framhalds­skólum fellur niður á miðnætti og fjölda­takmarkanir fara úr 50 í 200. Veitinga- og skemmti­staðir mega hafa opið til miðnætti.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum fyrir hádegi að aflétta hluta af sóttvarna­takmörkunum sem ekki áttu að taka gildi fyrr en 24. febrúar, í öðru skrefi afléttingar­áætlunar stjórn­valda vegna COVID-19. „Ef ekkert óvænt gerist þá getum við aflétt öllu í lok mánaðar," sagði Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra að loknum ríkis­stjórnar­fundi. Meðal helstu breytinga er að 200 manns verður heimilt að koma saman í stað 50 og sóttkví og skóla­reglugerð fellur úr gildi.

Reglur um sóttkví falla úr gildi í dag og eru því munu 9.712 manns sem skráð eru í sóttkví þessa stundina losna þegar reglu­gerðin birtist í Stjórnar­tíðindum síðar í dag. Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa því ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýnatöku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar.

Á miðnætti verður skóla­reglugerð afnumin og verða því engar takmarkanir á skóla­haldi í grunn- og framhalds­skólum. Þannig verða skóla­skemmtanir heimilar á ný.

Afléttingar­áætlun stjórn­valda sem kynnt var fyrir tveimur vikum er í þremur skrefum. Samkvæmt henni á næsta skref að taka gildi 24. febrúar en nú er ljóst að hluti þeirra takmarkana sem átti að aflétta þá verður aflétt á miðnætti.

Niður­felling á reglum um einangrun og sóttkví er meðal þess sem á að taka gildi í næsta skrefi afléttingar­áætlunarinnar en heilbrigðis­ráðherra og Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir sögðu í fréttum í gær að ekki þætti tímabært að afnema einangrun. Sóttkví hefur hins vegar verið afnumin.

Í reglu­gerðinni er sund- og líkams­ræktar­stöðvum, sem og skíða­svæðum, heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.

Afgreiðslu­tími staða með vínveitinga­leyfi verður lengdur um eina klukku­stund, það er að heimilt er að taka á móti gestum til miðnættis en allir þurfa að hafa yfirgefið staðinn klukkan eitt.

Smitum hefur farið fjölgandi í vikunni. Á miðvikudag var enn eitt metið sett þega 2.252 smit greindust daginn áður. Á sama tíma hefur innlögnum á Land­spítala ekki fjölgað. 32 eru á spítala sem stendur með COVID-19. Karlmaður á níræðis­aldri með Covid-19 lést á legu­deild á spítalanum í gær.

Reglu­gerðin sem tekur gildi á miðnætti gildir í tvær vikur, eða til og með 25. febrúar. Annað skref afléttingar­áætlunar stjórn­valda á að taka gildi þann 24. febrúar en allar takmarkanir eiga að falla úr gildi 14. mars. Það gæti þó breyst ef marka má orð heilbrigðis­ráðherra og öllum takmörkunum verði aflétt í lok febrúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár