Erum við að fara að kveðja einangrun og sóttkví á föstudaginn?

Í síðasta minnis­blaði sóttvarna­læknis var afnám reglna um einangrun og sóttkví á meðal þess sem lagt var til að ráðist yrði í 24. febrúar. Nú stendur til að flýta afléttingum, en óljóst er hvað felst í því að fella niður reglur um einangrun og sóttkví.

Yfir tíu þúsund manns eru nú í einangrun hérlendis og ríflega átta þúsund í sóttkví.
Yfir tíu þús­und manns eru nú í ein­angrun hér­lendis og ríf­lega átta þús­und í sótt­kví. Mynd: Pexels

Undan­farna daga hefur verið sagt frá því í fréttum að Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hafi vonir um að geta kynnt afléttingar sóttvarna­ráðstafana fyrr en áætlað hefur verið. Í umfjöllunum fjölmiðla var vísað til síðasta minnis­blaðs Þórólfs Guðna­sonar, þar sem afléttingar voru teiknaðar upp í skrefum.

Haft var eftir ráðherra á RÚV í gær að næstu afléttingar sem áætlaðar höfðu verið 24. febrúar gætu færst fram um jafnvel tvær vikur og tíðinda væri að vænta á föstudag, eftir ríkis­stjórnar­fund.

Reglur um einangrun og sóttkví á útleið?

Það sem kannski einna helst hefur vakið athygli í þessum fréttum er það að á meðal aðgerða sem sóttvarna­læknir dróg upp í sínu nýjasta minnis­blaði frá 26. janúar var það að reglur um bæði einangrun og sóttkví myndu falla í þeim aðgerðum sem áætlaðar hafa verið 24. febrúar.

Í dag eru 10.100 manns í einangrun og 8.763 í sóttkví samkvæmt opinberum tölum, eða allnokkur prósent þjóðarinnar.

Það er svipað og verið hefur undan­farnar vikur, á meðan ómíkrón-afbrigði kórónu­veirunnar hefur þotið á milli lands­manna, án þess þó blessunar­lega að valda alvarlegum veikindum hjá mörgum og þar með engu sligandi álagi á heilbrigðis­kerfið.

Upplýsingar hafi ekki þýðingu nema fyrir endanlega ákvörðun

Kjarninn óskaði eftir frekari skýringum á þessu efnis­atriði í minnis­blaðinu frá sóttvarna­lækni og spurði blaða­maður hvort einhver hængur væri á þessu orðalagi, sem ekki hefði verið útskýrður til fulls í hans síðasta minnis­blaði, eða hvort það yrði einfald­lega svo að þeir sem greindir væru með COVID-19 gætu valsað um bæinn og farið á mannamót að vild, eftir að reglur yrðu felldar niður.

Þórólfur svaraði skriflegri fyrir­spurn Kjarnans um þetta efni einfald­lega með þeim orðum að „endanlegt minnis­blað“ væri ekki farið til heilbrigðis­ráðherra, en eins og sagt var frá í fréttum í gær er sóttvarna­læknir með minnis­blað í smíðum um næstu afléttingar.

Blaða­maður ítrekaði þá að verið væri að spyrja um efnis­atriði í hans fyrra minnis­blaði og kom því á framfæri við sóttvarna­lækni að það hefði „þýðingu að fá frekari útskýringu á því hvað afnám reglna um einangrun og sóttkví felur í sér.“

Sóttvarna­læknir er þó ekki á þeirri skoðun. „Upplýsingarnar hafa ekki þýðingu nema fyrir endanlega ákvörðun,“ segir í skriflegu svari hans við fyrir­spurn Kjarnans.

Skýrist á föstudag

Það er því enn nokkuð óljóst hvað nákvæmlega felst í því að fella niður allar núverandi reglur um einangrun og sóttkví og hvort einhver ný tilmæli fyrir þá sem eru með veiruna muni leysa reglurnar af hólmi.

Einnig er ekki ljóst hvort niður­felling reglnanna verði yfir höfuð á meðal þeirra afléttinga sem sóttvarna­læknir kemur til með að leggja til í næsta minnis­blaði sínu til ráðherra um afléttingar.

Um það fær almenningur væntanlega að heyra meira um á föstudag, að ríkis­stjórnar­fundi loknum, eins og venjan er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár