Kvörtun undan Helga Hjörvari snerist um ósæmilega hegðun eftir fund Norðurlandaráðs

Helgi Hjörvar var for­maður Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs þegar hann er sagður hafa hegðað sér ósæmi­lega gagn­vart ung­liða í Helsinki. Formenn full­trúa­ráðs og kjör­stjórnar hvöttu Helga til að draga sig í hlé en málið setti svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Reykja­vík árið 2016. „Konum í kringum fram­boð Sam­fylk­ing­ar­innar var mjög mis­boðið.“

Ábend­ingar um Helga Hjörvar, fyrr­ver­andi þing­flokks­for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, sem bár­ust flokks­for­ystu Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2016 og greint var frá á DV.is og Viljanum.is í gær varða meðal ann­ars meinta ósæmi­lega hegðun Helga gagn­vart ungri konu á ráð­stefnu Norð­ur­landa­ráðs í Helsinki árið 2012. Á þeim tíma var Helgi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs en konan, sem var á þrí­tugs­aldri, var í hópi ung­liða á ráð­stefn­unni. 

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar var greint frá atvik­inu eftir að Helgi Hjörvar bauð sig fram til for­mennsku í flokknum árið 2016. Eftir að Helgi tap­aði for­manns­slagnum fund­uðu trún­að­ar­menn í flokknum með honum og réðu honum frá því að taka þátt í próf­kjörum og bjóða sig fram til þings. Helgi varð ekki við þeirri beiðni og taldi for­maður flokks­ins á þessum tíma, Oddný Harð­ar­dóttir, ekki rétt að þrýsta á Helga að stíga til hliðar. 

„Þetta eitr­aði allt“

Ásak­an­irnar gegn Helga Hjörvari urðu mjög umtal­aðar innan Sam­fylk­ing­ar­innar og voru við­brögð flokks­for­yst­unnar umdeild. Óhætt er að full­yrða að málið hafi sett svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Reykja­vík. „Konum í kringum fram­boð Sam­fylk­ing­ar­innar var mjög mis­boðið,“ segir einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar sem var við­rið­inn kosn­inga­bar­átt­una. „Þetta eitr­aði allt,“ segir annar. Fleiri óþægi­leg mál komu upp hjá Sam­fylk­ing­unni um svipað leyti og beið flokk­ur­inn algert afhroð í þing­kosn­ing­unum 2016.

Ágúst Ólafur fær „svigrúm“ 

Stundin spurð­ist fyrir um mál Helga fyrir tveimur árum og ræddi við fólk í flokknum. „Flokknum bár­ust ábend­ingar í þessa veru, og eins og alltaf ber að gera eru þær teknar mjög alvar­lega,“ sagði þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar aðspurður hvort stjórn flokk­ins hefðu borist kvart­anir vegna meints kyn­ferð­is­legs áreitis Helga Hjörvars. Stundin náði ekki tali af kon­unni á sínum tíma og taldi fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar of óljósar til að hægt væri að fjalla með ábyrgum hætti um málið. 

Nú, eftir að Ágúst Ólafur Ágústs­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tók sér leyfi vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni gagn­vart blaða­konu, hafa Viljinn.is og DV birt fréttir um ásak­anir gegn Helga. Það voru ábend­ing­arnar um fram­göngu hans sem urðu til þess að Sam­fylk­ingin setti á lagg­irnar form­legt ferli fyrir mál sem þessi, meðal ann­ars þá trún­að­ar­nefnd sem nýlega áminnti Ágúst Ólaf vegna ósæmi­legrar hegð­unar. Fram kom í Frétta­blað­inu í dag að for­ysta Sam­fylk­ing­ar­innar hefði ákveðið að veita Ágústi „svig­rúm til að leita sér aðstoðar og ná áttum“. 

Þvertók fyrir að hafa gert nokkuð af sér

Helgi Hjörvar var for­maður Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs á árunum 2009 til 2013 og for­seti ráðs­ins árið 2010. Þegar hann bauð sig fram til for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2016 var stjórn flokks­ins upp­lýst um ósæmi­lega hegðun sem Helgi var sagður hafa gerst sekur um nokkrum árum áður, á fundi Norð­ur­landa­ráðs í Helsinki í októ­ber 2012. 

Helgi var for­maður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2016 og átti sem slíkur sæti í stjórn­inni. Í ljósi þess að ekki var kvartað með form­legum hætti undan hátt­semi Helga og konan sem átti í hlut vildi ekki koma fram undir nafni taldi flokks­for­ysta Sam­fylk­ing­ar­innar sig lítið geta gert. Málið var borið upp á fundi og Helgi Hjörvar þvertók fyrir að hafa hagað sér með ósæmi­legum hætti. 

Formenn fulltrúaráðs og kjörstjórnar beittu sér

Eftir að Oddný Harð­ar­dóttir vann for­manns­kjörið spurð­ist fljótt út að Helgi ætl­aði að sækj­ast eftir öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Kjartan Val­garðs­son var á þessum tíma for­maður full­trúa­ráðs flokks­ins í borg­inni. Þegar honum var greint frá atburð­unum í Helsinki afl­aði hann upp­lýs­inga um máls­at­vik og boð­aði til fundar með Helga Hjörvari og Páli Hall­dórs­syni, for­manni kjör­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar báðu Kjartan og Páll Helga um að hætta við að bjóða sig fram enda litu þeir svo á að málið væri tif­andi tíma­sprengja fyrir flokk­inn. Helgi tók það ekki í mál og vís­aði öllum ásök­unum um óeðli­lega hátt­semi í Helsinki á bug.

Þá fund­aði Helgi með Oddnýju Harð­ar­dóttur og tjáði henni að hann ætl­aði að halda fram­boði sínu til streitu, enda hefði hann fullan rétt til að bjóða sig fram. Það gerði hann og lenti í öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður en missti þing­sætið sitt í kosn­ing­unum þar sem flokk­ur­inn fékk harða útreið.

Ekki náð­ist í Helga Hjörvar við vinnslu frétt­ar­innar. Fram kemur í frétt DV að mið­ill­inn hafi gert ítrek­aðar til­raunir til að ná tali af honum án árang­urs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár