Björn Ingi til varnar Jóni Ásgeiri og Kaupþingsmönnum: „Það er nóg komið af reiði í samfélaginu“

Útgefandi Vefpressunnar og DV telur of mikið fjallað um fangavist útrásar­víkinga í fjöl­miðlum.

Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi og stjórnar­formaður Vefpressunnar ehf, furðast að urgur sé í föngum á Kvía­bryggju vegna heimsókna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar athafna­manns í fangelsið og gerir málið að umtals­efni í pistli. 

Stundin greindi frá því í morgun að Jón Ásgeir hefði tvívegis lagt leið sína á Kvía­bryggju og fundað með fyrr­verandi stjórn­endum og eigendum Kaupþings sem þar afplána. Hlaupið hefði urgur í vistmenn, enda er föngum oft meinað um að fá heim­sóknir manna sem sæta ákæru eða bíða dóms. Jón Ásgeir er á meðal sakborninga í svonefndu Aurum-máli og upplifðu fangar heimsókn hans sem mismunun. Var Afstöðu, félagi fanga, gert viðvart og málið borið upp á fundi með fangelsis­mála­stjóra og forstöðu­manni Kvía­bryggju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár