Maðurinn sem framdi báðar árásirnar í Kaupmannahöfn felldur

Lögreglan í Kaupmanna­höfn segir að hún hafi fellt mann sem framdi tvær árásir í borginni í gær sem drógu tvo menn til dauða og særðu þrjá. Maðurinn var felldur eftir skor­bardaga nálægt lestar­stöðinni við Norðurbrú í nótt. Þetta kom fram á stuttum blaðamanna­fundi lögreglunnar í morgun. Ekki er talið að árásar­mennirnir hafi verið fleiri en einn þótt að enn eigi eftir að rannsaka marga fleti málsins.

Griðarlegur viðbúnaður var í Kaupmanna­höfn í alla nótt.

Talinn hafa ætlað að myrða skopmyndateiknara


Maðurinn hóf skotárás á menn­ing­ar­húsið Kruttønden á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn síð­degis í gær. Þar stóð yfir ráð­stefna um tján­ing­ar­frelsi Einn lést í þeirri árás og þrír lög­reglu­menn særð­ust. Ekki hefur verið greint frá því hver sá látni er en talið er að skot­mark árás­armanns­ins hafi verið sænski skop­mynda­teikn­ar­innar Lars Vilks, sem var á meðal fyr­ir­les­ara á ráð­stefn­unni.

Griðarlegur viðbúnaður var í Kaupmannahöfn í alla nótt.
Grið­ar­legur við­bún­aður var í Kaup­manna­höfn í alla nótt.

Lars Vilks.

Lars Vilks.
Lars Vilks.

Vilks hefur notið lögreglu­verndar árum saman þar sem honum hefur áður verið sýnt bana­tilræði, en hann hefur teiknað skop­myndir af Múhammeð spámanni og verið kallaður hinn sænski Kurt Westergaard. Vilk slapp ómeiddur frá árásinni. Honum var komið í skjól í eldhúsi menningar­hússins af lífvörðum sem gættu hans.

Flúði á dökklituðum Polo


Eftir að hafa hleypt af um 40 skotum flúði mað­ur­inn á dökklitum Volkswagen Polo. Upp­haf­lega var talið að ódæð­is­menn­irnir hefðu verið tveir en þegar leið á leit­ina af þeim kom í ljós að mað­ur­inn var einn að verki. Bif­reiðin fannst síðar yfir­gefin og var talið að mað­ur­inn hefði skipt um flótta­bíl.

Gríðar­legur viðbúnaður var í Kaupmanna­höfn og var allt tiltækt lögreglulið kallað út til að leita að manninum.

Skömmu eftir klukkan ellefu að íslenskum tíma var svo tilkynnt um skotárás við samkomuhús gyðinga í Kaupmanna­höfn. Þar skaut hann mann sem aðstoðar við fermingu í höfuðið með þeim afleiðingum að hann lést.

Nokkrum klukku­stundum síðar ætlaði árásar­maðurinn í íbúð sem lögreglan hafði fylgst með á Norðurbrú. Þegar hann varð lögreglu var hóf hann skothríð á lögreglu­menn sem felldu hann skömmu síðar. Lögreglan telur að sami maður hafi verið að verki í báðum árásunum og að ódæðis­mennirnir séu ekki fleiri. Hún lagði líka áherslu á að íbúar Kaupmanna­hafnar væru algjör­lega frjálsir ferða sinna þrátt fyrir mikinn viðbúnað lögreglu.

Minnir á Charlie Hebdo-árásina


Árás­irnar í Kaup­manna­höfn hafa verið settar í sam­hengi við árás­irnar á höf­uð­stöðvar franska skop­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo í síð­asta mán­uði. Þar lét­ust tólf, þar á meðal nokkrir af fræg­ustu skop­mynda­teiknurum blaðs­ins. Árás­ar­menn­irnir voru tveir bræð­urnSaid Kouachi og Cherif Kouachi. Þeir réð­ust sér­stak­lega á blaðið, og ákveðna starfs­menn þess, vegna teikn­inga sem það hafði birt af Múhammeð spá­manni.

Teikningar Charlie Hebdo af Múhameð spámanni hafa valdið mikilli ólgu víðsvegar um heiminn.

Teikningar Charlie Hebdo af Múhameð spámanni hafa valdið mikilli ólgu víðsvegar um heiminn.
Teikn­ingar Charlie Hebdo af Múhameð spá­manni hafa valdið mik­illi ólgu víðs­vegar um heim­inn.

Maður sem sagðist vera vitorðs­maður bræðranna, Ame­dy Couli­ba­ly, myrti síðar lögreglu­konu í París. Hann réðst síðar inn í verslun sem rekin er af gyðingum í austur­hluta Parísar og hélt þeim sem þar voru fyrir í gíslingu. Coulibaly var felldur í áhlaupi lögreglu en áður hafði hann drepið fjóra gísla. Bræðurnir voru líka drepnir í áhlaupi lögreglu sama dag.

#cphshooting Tweets

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár