Minntist á skýrsluna í ræðustól en „leið eins og þingið hefði bara verið farið heim“

Þingmenn Pírata gefa lítið fyrir skýringar Bjarna Benedikts­sonar. „Ráðherra getur ekki hafa verið það óljóst, aðspurður af frétta­stofu Rúv, hvort þingi hafi verið slitið eða ekki þegar skýrslan var tilbúin.“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, hefur gefið þær skýringar á ósannindum sem fram komu í viðtali við hann á laugardag að honum hafi liðið eins og hann hefði ekki fengið kynningu á skýrslu um umfang aflandseigna Íslendinga fyrr en eftir að þing var farið heim. Sjálfur talaði hann þó um skýrsluna í þingræðu eftir að honum hafði verið kynnt efni hennar.

Bjarni fór með rangt mál þegar hann sagðist hafa fengið umrædda skýrslu til sín í ráðuneytið eftir þingslit. Hið rétta er að skýrslan var afhent fjármála- og efnahags­ráðuneytinu þann 13. september þegar um mánuður var eftir af þing­störfum. „Það sem ég átti við, og það sem var í huga mér, var það, þegar þessi skýrsla er kynnt fyrir mér sem er þarna í fyrstu vikunni í október þá standa yfir samningar um þinglok. […] Í huga mínum í gær þá hugsaði ég með mér, mér leið eins og þingið hefði bara verið farið heim, en þetta var kannski ekki nákvæm tímalína hjá mér og ég biðst nú velvirðingar á því,“ sagði hann í viðtali við RÚV á sunnudags­kvöld þegar hann baðst velvirðingar á „ónákvæmni“ daginn áður.

Þann 10. október talaði hann hins vegar sjálfur um skýrsluna í ræðu á Alþingi og sagðist brátt mundu skila henni. „Ég mun á næstu dögum sömuleiðis skila skýrslu um þau mál sem ég boðaði í vor varðandi umfang þeirra mála,“ sagði Bjarni orðrétt í svari við óundirbúinni fyrir­spurn um aðgerðir gegn skatta­undanskotum. Fyrir­spyrjandinn var Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar sem nú er að mynda ríkis­stjórn með Bjarna.

Píratar rifja upp þessi ummæli Bjarna í harðorðri yfir­lýsingu sem þeir sendu frá sér í gærkvöldi. Bent er á að skýrslunni var skilað til ráðuneytis Bjarna þann 13. september síðastliðinn og ráðherra sérstak­lega kynnt efni hennar þann 5. október, rúmri viku áður en þingi var slitið.

„Ráðherra getur vart borið fyrir sig minnis­glöpum í þessu samhengi, þar sem hann svaraði sjálfur óundirbúinni fyrir­spurn um málið á Alþingi þann 10. október. Þar fullyrti hann að umrædd skýrsla yrði birt á næstu dögum, vitandi vel að skýrslan væri tilbúin til birtingar. Þetta þýðir að ráðherra getur ekki hafa verið það óljóst, aðspurður af frétta­stofu Rúv, hvort þingi hafi verið slitið eða ekki þegar skýrslan var tilbúin,“ segir í yfir­lýsingu Pírata. 

Ný ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar undir forsæti Bjarna Benedikts­sonar verður kynnt í dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttar­stöðu rannsóknar­þola

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, setti fram alvarlegar ásakanir á hendur Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra í Silfrinu síðustu helgi. Skatt­rannsóknar­stjóri telur sér ekki heimilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið réttar­stöðu rannsóknar­þola eftir kaup á gögnum um aflandsfélög Íslendinga og uppljóstr­anir Panama­skjalanna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár