FBI: Þetta var hryðjuverkaárás

50 eru látnir og 53 slasaðir eftir verstu skotárás í sögu Banda­ríkjanna. Alríkis­lögreglan FBI segir að skot­árásin hafi verið hryðjuverka­árás.

Fimm­tíu eru látnir eftir skotárás á skemmti­staðnum Pulse fyrir hinsegin fólk í Orlando í Flór­ída í gær­kvöldi. Árásin er mann­skæð­asta skotárás í sögu Banda­ríkj­anna.

Bandaríska alríkis­lögreglan FBI segir árásina hafa verið hryðjuverka­árás (act of terror), og er hún rannsökuð sem slík, samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC.

Búið er að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í Orlando vegna árás­ar­inn­ar, sem er rann­sökuð sem hryðju­verk sem stendur en einnig kemur til greina að hún sé hat­urs­glæp­ur.

Árás­armað­ur­inn hét Omar Sadd­iqui Mateen og var 29 ára gam­all Flór­ída-­búi og með bandarískt ríkisfang. Hann var skotinn til bana á staðnum, í leiftur­sókn sérsveitar löreglunnar í Orlando á staðinn, þegar ljóst var að Mateen hafði skotið fjölmarga til bana, vopnaður hálf­sjálfvirkum riffli og skamm­byssu.

Árásin hefur verið fordæmd af þing­mönnum, borgar­stjórum í Evrópu og þjóðar­leiðtogum einnig. Þeir hafa notað Twitter til að koma skila­boðum sínum á framfæri.

Í tilkynningu frá Hvíta húsinu, segir að Barack Obama Bandaríkja­forseti hafi komið þeim skila­boðum til lögreglu­yfirvalda að yfirvöld myndu leggja lið á allan mögulegan hátt, þegar kæmi að rannsókn málsins. Í yfir­lýsingunni er áréttað að áköf leit að upplýsingum sem geti greint atburðina eins vel og hægt er, sé í gangi og að Bandaríkja­forseti fái upplýsinga jafn óðum og þær berast. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár