Víkur sæti – Var framkvæmdastjóri Landverndar þegar kæran barst ráðuneytinu

Umhverfis- og auðlinda­ráðherra víkur sæti í máli er varðar kæru Land­verndar á ákvörðun Skipulags­stofnunar um að taka ekki til ákvörðunar hvort fyrir­huguð stækkun á Hótel Reynihlíð í Mývatns­sveit skuli sæta umhverfis­mati.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlinda­ráðherra hefur vikið sæti í máli er varðar kæru Land­verndar á ákvörðun Skipulags­stofnunar um að taka ekki til ákvörðunar hvort fyrir­huguð stækkun á Hótel Reynihlíð í Mývatns­sveit skuli sæta umhverfis­mati samkvæmt lögum um mat á umhverfis­áhrifum.

Þetta kemur fram í svari forsætis­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans. Tillaga til forseta Íslands um að setja stað­gengil í embætti umhverfis- og auðlinda­ráðherra í málinu var rædd á ríkis­stjórnar­fundi í morgun.

Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra verður settur umhverfis- og auðlinda­ráðherra þegar málið verður tekið til meðferðar og ákvörðun tekin, samkvæmt svari ráðuneytisins. Svandís var umhverfis­ráðherra á árunum 2009 til 2013.

„Umhverfis- og auðlinda­ráðherra vék sæti í málinu þar sem hann gegndi stöðu framkvæmda­stjóra Land­verndar á þeim tíma er kæra Land­verndar barst umhverfis- og auðlinda­ráðuneytinu,“ segir enn fremur í svarinu.

Guðmundur Ingi var framkvæmda­stjóri Land­verndar á árinum 2011 til 2017 eða þangað til hann tók við embætti umhverfis- og auðlinda­ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár