Trump styður Sádi-Arabíu og olían hríðfellur

Eftir að Donald Trump lýsti yfir stuðningi við Sádí-Arabíu vegna morðsins á Jamal Khashoggi hrundi verðið á hráolíu.

Donald Trump Bandaríkja­forseti sendi frá sér yfir­lýsingu í dag, þar sem hann sagðist treysta yfir­völdum í Sádí-Arabíu og að líklega myndi það aldrei skýrast til fulls hverjir hefðu staðið skipulagningu morðsins á Jamal Khashoggi, pistla­höfundi Washington Post, sem myrtur var í sendiráði Sádí-Arabíu í Istanbul, 3. október síðastliðinn.

Trump sagðist treysta krónprinsinum Mohammed bin Salman, en Washington Post greindi frá því fyrr í vikunni að bandaríska leyni­þjónustan teldi Salman hafa staðið að baki morðinu á Khashoggi. Trump lét hafa eftir sér, að hann hafi ekki viljað hlusta á upptökur af því þegar Khashoggi var pyntaður og síðan myrtur af aftöku­sveit Sádí-Araba, en tyrknesk yfirvöld, sem eru nú að rannsaka málið sjálfstætt, fullyrða að krónprinsinn hafi fyrir­skipað morðið.

Khashoggi hafði gagnrýnt krónprinsinn vegna stríðsins í Jemen, en óbreyttir borgarar hafa þar fallið í stríðs­átökum sem Sádí-Arabía, með stuðningi Banda­ríkjanna, hefur borið mesta ábyrgð á. Í pistli sem Khashoggi skrifaði á vef Washington Post í september þá sagði hann að krónprinsinn hefði þetta í hendi sér, sem hæstráðandi í Sádí-Arabíu, og gæti stöðvað stríðið og unnið að friðsamlegri lausn með Íran og Banda­ríkjunum.

Eftir yfir­lýsingu Trumps í dag hrundi olíuverð, og hefur lækkað um rúmlega sjö prósent þegar þetta er skrifað, en Trump hefur sjálfur talað fyrir því að olían eigi að lækka meira og hefur þrýst á Sádí-Arabíu um að auka fram­leiðslu til að þrýsta verðinu niður.

Hann hefur sagt að verðið eigi í reynd að vera lægra, og það muni að lokum draga úr verðbólgu­þrýstingi í Banda­ríkjunum og vinna gegn frekari vaxta­hækkunum Seðla­banka Banda­ríkjanna.

Svo virðist sem markaðurinn meti það þannig, að stuðnings­yfirlýsing Trumps leiði til þess að fram­leiðsla muni aukast og Banda­ríkin þannig ná sínu fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár