Telur ríkisstjórn undir forsæti Bjarna Benediktssonar geta aukið traust og tiltrú á íslenskum stjórnmálum

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, telur grund­vall­armun á stöðu Sigmundar Davíðs og Bjarna þótt hvorugur hafi sagt satt um aðkomu sína að aflands­fé­lagi og báðir birt upplýsingar um skattskil sín. Björt framtíð mun halda áfram baráttu gegn fúski í samvinnu við Bjarna.

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, telur að ný ríkis­stjórn undir forsæti Bjarna Benedikts­sonar geti aukið traust og tiltrú almennings á íslenskum stjórn­málum. Þetta kemur fram í svörum hans við spurningum Stundarinnar um afstöðu hans til vinnu­bragða Bjarna Benedikts­sonar, forsætis­ráðherra og fyrrum fjármála­ráðherra sem ákvað að fresta birtingu skýrslu um aflandseignir Íslendinga fram yfir þing­kosningar og sagði ósatt um málið í viðtali.

Eins og Stundin greindi frá í vikunni fjallar skýrslan með gagnrýnum hætti um þá stefnu sem rekin var á sviði skatta­löggjafar og skatta­eftirlits á útrásar­árunum þegar Sjálfstæðis­flokkurinn fór með fjármála­ráðuneytið. Bjarni Benediktsson fullyrti ranglega í viðtali við RÚV síðustu helgi að skýrslunni hefði ekki verið skilað í ráðuneyti sitt fyrr en eftir þingslit í október, en hið rétta er að skýrslan barst ráðuneytinu þann 13. september. Hann hefur nú viðurkennt að hafa ákveðið að birta hvorki almenningi né Alþingi skýrsluna fyrir kosningar, enda hafi hann ekki viljað að efni hennar yrði „sett í kosninga­samhengi“. 

Stundin sendi öllum þing­mönnum Viðreisnar og Bjartrar framtíðar fyrir­spurn á mánudaginn og óskaði eftir afstöðu þeirra til málsins, hvort ákvörðun, vinnu­brögð og skýringar Bjarna standist kröfur þeirra um gott stjórnmála­siðferði og vandaða stjórnsýslu­hætti. 

Björt framtíð er flokkur sem hefur lagt mikla áherslu á að bæta vinnu­brögð og siðferði í stjórn­málum og að vinna gegn fúski og leyndar­hyggju. Stundin óskaði eftir afstöðu þingmanna flokksins til aðkomu Bjarna að ákvörðunum um kaup skatt­rannsóknar­stjóra á gögnum sem höfðu meðal annars að geyma aflandsfélag sem Bjarni átti sjálfur hlut í.

Þetta skjá­skot af Twitter-færslu Óttars hefur farið eins og eldur í sinu um netheima.

Óttarr Proppé og þingmenn Bjartrar framtíðar voru einnig beðnir um að útskýra hvort þær siðferðis­kröfur sem flokkurinn gerði til Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar í kjölfar umræðunnar um Panama­skjölin í fyrravor ættu ekki einnig að gilda um Bjarna Benediktsson í ljósi þess að hann leyndi því að hann ætti aflandsfélag og hefur nú verið staðinn að því að leyna skýrslu um aflandseign Íslendinga fyrir kjósendum. 

Aðeins fjórir þingmenn hafa svarað fyrir­spurn Stundarinnar og hafa svör Pawels Bartoszeks og Jóns Steindórs Valdimars­sonar, þingmanna Viðreisnar, þegar birst hér á vefnum. Tveir þingmenn Bjartrar framtíðar hafa svarað, annars vegar formaður flokksins og hins vegar þingkonan Nicole Leigh Mosty. 

Óttarr Proppé segist telja ákveðinn grundvallarmun á stöðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar og Bjarna Benedikts­sonar að því er varðar aðkomu þeirra að aflandsfélögum. „Eftir að upplýsingarnar komu fram þá gerði Bjarni sitt besta til að útskýra sitt mál og birta gögn sem sýndu skatt­skyldar tekjur hans þ.m.t. vegna umrædds félags. Hinn fyrr­nefndi reyndi að ljúga til um það,“ segir Óttarr. 

Tekið skal fram að Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson hafa báðir birt gögn um skattskil sín. Þá eiga Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson það sameiginlegt að hafa ekki greint rétt frá þegar þeir voru spurðir um eigin aðkomu að aflandsfélögum í viðtölum. 

Spurningar Stundarinnar og svör Óttars Proppé birtast í heild hér að neðan. 

Spurningar Stundarinnar:

1. Þú sagðir á Twitter í apríl: „Forsætis­ráðherra er tengdur aflandsfélagi og hélt því leyndu. Orðspor Íslands er undir. Það er óhugsandi að Forsætis­ráðherra sé stætt.“ Hefurðu skipt um skoðun eða telurðu enn að það sé óhugsandi að forsætis­ráðherra sem tengist aflandsfélagi og leynir því sé stætt? 

2. Telurðu að það samrýmist góðum stjórnsýslu­háttum og stjórnmála­siðferði að ráðherra eigi beina aðkomu að ákvörðunum um kaup skatt­rannsóknar­stjóra á gögnum sem hafa að geyma upplýsingar um hans eigið aflandsfélag?

3. Finnst þér réttlætanlegt að ráðherra, sem sjálfur hefur geymt peninga í aflandsfélagi, ákveði að fresta birtingu á skýrslu um umfang aflandseigna Íslendinga fram yfir þing­kosningar sem var efnt sérstak­lega til vegna afhjúpana á aflands­starfsemi? 

4. Finnst þér í lagi að ráðherra segi almenningi ósatt um málið? 

5. Sé svarið við einhverri af þessum spurningum nei, hvers vegna finnst þér þá réttlætanlegt að þinn flokkur taki þátt í að gera viðkomandi stjórn­málamann að forsætis­ráðherra Íslands? 

6. Hvers vegna telurðu að ríkis­stjórn undir forsæti þessa stjórn­málamanns geti, í samræmi við yfirlýst markmið þíns eigin flokks, aukið traust og tiltrú almennings á íslenskum stjórn­málum og unnið að almannahags­munum í stað sérhagsmuna?

Svör Óttars Proppé:

1. Ég tel ákveðinn grund­vallar mun á stöðu þáverandi forsætis­ráðherra og fráfar­andi fjármála­ráðherra því að eftir að upplýsingarnar komu fram þá gerði Bjarni sitt besta til að útskýra sitt mál og birta gögn sem sýndu skatt­skyldar tekjur hans þ.m.t. vegna umrædds félags. Hinn fyrr­nefndi reyndi að ljúga til um það. Eftir það var kosið og við erum að vinna úr niður­stöðum kosninganna núna. Þar fékk Sjálfstæðis­flokkurinn þriðjung þingmanna á Alþingi. Ég neita því ekki að það hefði verið ólíkt hreinlegra ef skýrslan hefði komið fram strax. Þegar hún gerði það loks voru stjórnar­myndunar­viðræður á lokastigi og okkur fannst innihald hennar ekki gefa tilefni til að hlaupa frá því verkefni enda búið að slá alls kyns varnagla í stjórnar­sáttmála t.d. með samkomu­lagi um eflt skatta­eftirlit, þ.m.t. í skatta­skjólum. Það er því búið að bregðast við því vandmáli sem lýst er í skýrslunni, með aðkomu fráfar­andi fjármála­ráðherra.

2. Ég tel að aðkoma kjörinna fulltrúa að hvers konar ákvörðunum sem varða þá sjálfa sé mjög óheppileg og slíkt beri alltaf að forðast. Björt framtíð hefur beitt sér fyrir gagnsæi og heiðar­leika í stjórn­sýslu og minna fúski. Við það stöndum við.

3. Það er afleitt að ráðherrar tengist með nokkrum hætti geymslu peninga í aflandsfélögum. Umrædd skýrsla er tekin saman að frumkvæði hans sjálfs en er ekki nákvæm. Þar kemur fram að umfang eigna og umsvifa Íslendinga á aflands­svæðum frá árinu 1990 sé einhvers staðar á bilinu 350-810 milljarðar króna. Það er 350-810 milljörðum of mikið en umrædd skýrsla fjármála­ráðuneytisins um skatta­skjól sýnir mikilvægi eflingar skatt­eftirlits. Í stjórnar­sáttmálanum sem kynntur var í dag er brugðist við því með samkomu­lagi flokkanna um eflt skatta­eftirlit. Það eftirlit nær einnig til skatta­skjóla og verður því viðfangs­efni nýrrar ríkis­stjórnar.

4. Fólk, þ.m.t. ráðherrar, á alltaf að segja satt.

5. Það er beinlínis skylda þeirra sem kosnir hafa verið til þings að koma sér saman um myndun starf­hæfrar ríkis­stjórnar. Undan­farnar tiu vikur hafa þeir flokkar sem fengu kjörna þingmenn reynt ýmsar leiðir til þess en án árangurs. Björt framtíð fékk fjóra þingmenn kjörna. Björt framtíð tekur hlutverk sitt mjög alvarlega og hefur svo sannarlega sett mark sitt á stjórnar­sáttmálann. Þar er að finna mörg af okkar mikil­vægustu málum og að þeim munum við vinna á kjör­tímabilinu. Í því felst m.a. að efla skatta­eftirlit sem nær einnig til skatta­skjóla.

6. Allir flokkar í ríkis­stjórninni eru sammála um að beita sér fyrir bættum vinnu­brögðum og aukinni sátt á vettvangi stjórn­málanna. Hinn naumi meirihluti sem stjórnin býr yfir mun einnig leiða til aukins og bætts samstarfs í þinginu. Það er ekki of seint að bregðast við skýrslunni og við henni er brugðist í stjórnar­sáttmálanum. Þá hefur málefna­samningurinn einnig að geyma mál sem auka lífsgæði fólks þar sem áhersla er lögð á almannahags­muni í stað sérhagsmuna. Má þar nefna vandaðar umbætur á land­búnaðar- og sjávar­útvegs­kerfum og forgang á sviði heilbrigðis­mála. Við erum sérstak­lega stolt af því markmiði að stórauka aðgengi fólks að geðheil­brigðis­þjónustu, auknum þunga í uppbyggingu öldrunar­þjónustu og styttingu biðtíma í heilbrigðis­kerfinu auk þess sem ætlunin er að minnka greiðslu­þátttöku einstaklinga í heilbrigðis­þjónustunni og að hraða uppbyggingu Land­spítalans. Þess utan er það stefna okkar að lögfesta notenda­stýrða persónu­lega aðstoð fatlaðs fólks í samráði við sveitar­félög og að hækka lífeyris­aldur í áföngum svo eitthvað sé nefnt. Fjölmörg önnur mál sem Björt framtíð hafði á sinni stefnu­skrá er einnig að finna í sátt­málanum og við teljum okkar málum um mannúðlegra samfélag og minna fúsk betur komið innan ríkis­stjórnar en utan hennar. Þannig ætlum við að auka traust og tiltrú almennings á íslenskum stjórn­málum og beita okkur fyrir almannahags­munum umfram sérhagsmuni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár