Árásarmaðurinn var yfirheyrður í tvígang

Hinn 29 ára gamli Omar Mateen, sem myrti 50 og særði 53 á skemmtistaðnum Pulse í Orlando í nótt, hafði tengsl við íslamska ríkið (ISIS) en FBI yfir­heyrði hann fyrir þremur árum og aftur árið 2014. Hann keypti vopnin sem hann notaði í árásinni - hálf­sjálfvirkan riffil og skamm­byssu - fyrir viku síðan.

Barack Obama, Bandaríkja­forseti, sagði árásina vera í rannsókn og væri unnið eftir því að um hryðjuverka­árás hafi verið að ræða, þó enn hafi ekki fengist formleg staðfesti á því. Allar upplýsingar væru rann­sakaðar eins fljótt og mögulegt væri.

Hann nýtti tækifærið, og bendi spjótunum að byssu­löggjöfinni, og því að of auðvelt væri fyrir fólk að verða sér út um vopnm í Banda­ríkjunum. „Við stöndum frammi fyrir vali. Það er líka ákvörðun að gera ekkert í þessu,“ sagði Obama.

Mateen var skot­inn til bana á staðn­um, í leift­ur­sókn sér­sveitar löregl­unnar í Orlando á stað­inn, þegar ljóst var að Mateen hafði skotið fjöl­marga til bana.

Obama sagði bandarísku þjóðina vera með hugann hjá þeim sem ættu um sárt að binda vegna árásarinnar. Banda­ríkin myndu nú sýna samstöðu, og bregðast við árásinni með ábyrgum hætti, í takt við þær upplýsingar sem kæmu fram.

Árásin er versta hryðjuverka­árás í Banda­ríkjunum frá árásunum á tvíbura­turnanna 11. september 2001, og versta árás sem beinst hefur gegn hinsegin fólki í sögu landsins. Þá er skot­árásin sú mann­skæðasta í sögunni.

Neyðar­ástandi hefur verið lýst yfir í Orlando, og er rannsókn á árásunum - og tengslum við hryðjuverka­samtök - í fullum gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár