Gunnar Bragi líkir bréfi stjórnarandstöðu til ESB við valdarán

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra segir að ástæða þess að hann valdi að leggja ekki fram aðra þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um slit á við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið vera þá að til­lagan sem hann lagði fram fyrir um ári hafi verið tekin „í gísl­ingu“ á Alþingi Íslend­inga. Þetta kom fram í við­tali við Gunnar Braga í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þess í stað sendi Gunnar Bragi bréf til Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem því var til­kynnt að Ísland vildi ekki lengur vera flokkað sem umsókn­ar­ríki.

Aðspurður um skoðun sína á bréfi sem stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á Alþingi hafa sam­eig­in­lega sent Evr­ópu­sam­band­inu vegna ákvörð­unar Gunnars Braga um að slíta við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, sagði utan­rík­is­ráð­herr­ann að hann hefði heyrt orðið valda­rán ein­hvers­staðar. „Og ef þetta er ekki valda­rán...“. Gunnar Bragi sagði bréfið mjög und­ar­legt og að það sem fram kom í því byggi á mjög veikum laga­legum grunni.

Í bréf­inu, sem var sent í gær, segir að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafi mis­mun­andi skoð­anir á aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Flokk­arnir séu hins vegar sam­mála um að bréfið sem Gunnar Bragi Sveins­son sendi á fimmtu­dag, og hann telur að hafi slitið við­ræðum við sam­bandið, geti ekki breytt stöðu Íslands gagn­vart sam­band­inu. Það sé ein­göngu á valdi Alþingis að ákveða að breyta stöðu rík­is­ins.

Í fréttum RÚV í kvöld sagði Gunnar Bragi að með bréf­inu sem hann sendi hafi rík­is­stjórn verið að til­kynna Evr­ópu­sam­band­inu að Ísland sé ekki lengur umsókn­ar­ríki að Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár