Stjórnarandstaðan sendir ESB bréf og segir ríkisstjórnina ekki hafa umboð

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á Alþingi hafa sent sam­eig­in­legt bréf til stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins vegna ákvörð­unar rík­is­stjórn­ar­innar um að slíta við­ræðum um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til fjöl­miðla.

„Á fundi for­manna þing­flokka í morgun ósk­uðu for­menn þing­flokka stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna eftir því að for­seti Alþingis kæmi þeim skýru skila­boðum á fram­færi við Evr­ópu­sam­bandið að bréf rík­is­stjórn­ar­innar frá í gær ætti ekki stoð í ákvörð­unum Alþingis og að ályktun Alþingis frá árinu 2009 væri enn í fullu gildi. Því var hafnað. For­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana er því nauð­ugur einn kostur að senda með­fylgj­andi bréf til stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins til að koma skýr­ingum á fram­færi og upp­lýsa sam­bandið um að rík­is­stjórnin hafi hvorki umboð þings né þjóðar til að breyta stöðu Íslands gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu með þeim hætti sem til­kynnt er í bréfi utan­rík­is­ráð­herra til Evr­ópu­sam­bands­ins,“ segir í til­kynn­ing­unni til fjöl­miðla.

Bréfið er sent til Martin Schulz, for­seta Evr­ópu­þings­ins, Johannes Hahn, fram­kvæmda­stjóra nágranna­stefnu og aðild­ar­við­ræðna hjá fram­kvæmda­stjórn ESB, og Edgars Rinkevics, utan­rík­is­ráð­herra Lett­lands, sem fer með for­mennsku nú um stundir. Það er und­ir­ritað af for­mönnum allra fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á Alþingi, Árna Páli Árnasyni, Guðmundi Stein­gríms­syni, Katrínu Jak­obs­dóttur og Birgittu Jóns­dóttur.

Í bréf­inu segir að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafi mis­mun­andi skoð­anir á aðild að ESB. Flokk­arnir séu hins vegar sam­mála um að bréfið sem Gunnar Bragi Sveins­son sendi geti ekki breytt stöðu Íslands gagn­vart sam­band­inu. Það sé ein­göngu á valdi Alþingis að ákveða að breyta stöðu rík­is­ins.

Bréf - ESB - Hahn - skannað

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár