Landsvirkjun lækkar verð til smásala rafmagns

Meðalverð á rafmagni frá heild­salanum Lands­virkjun til fyrir­tækja sem selja rafmagn til heimila og smærri fyrir­tækja mun lækka á næsta ári. Það er svo í hendi smásala hvort að verðið til notenda lækki.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Birgir Þór

Meðalverð á rafmagni sem sölu­fyrirtæki rafmagns kaupa af Lands­virkjum og selja til heimila og fyrir­tækja mun lækka um 2,6 prósent á föstu verðlagi á næsta ári. Ástæðan eru nýir samningar sem Lands­virkjun hefur gert við fyrir­tækin sem fela í sér bætta nýtingu á orku­auðlindum landsins með aflsparnaði og tækifæri til hagræðingar og bættra innkaupa hjá orku­fyrir­tækjunum. Sölu­fyrirtækin sem um ræðir eru Orkusalan, Orka nátt­úrunnar, HS Orka, Fallorka, Orkubú Vestfjarða og Rafveita Reyðar­fjarðar.

Þetta þarf ekki endilega að þýða að rafmagns­reikningur heimila og smærri fyrir­tækja í landinu lækki, heldur þýðir þetta einfald­lega að verðið frá heild­salanum, Lands­virkjun, til smásalans, ofan­greindra fyrir­tækja, lækkar. Það er síðan sölu­fyrir­tækjanna að ákveða hvort að sú lækkun skilar sér til notenda.

Gömlu samningarnir renna út um áramót

Lands­virkjun er lang­stærsti fram­leiðandi rafmagns á Íslandi. Um 80 prósent af öllu rafmagni sem það fram­leiðir er selt til stór­notenda á borð við álver og annarra stór­iðjuvera. Um 20 prósent af rafmagns­sölu Lands­virkjunar er hins vegar seld á heild­sölumarkaði þar sem Lands­virkjun selur ekki rafmagn beint til heimila eða smærri fyrir­tækja. Þau fyrirtæki sem kaupa rafmagnið á þeim markaði selja það svo áfram til enda­notenda.

Lands­virkjun hélt fréttamanna­fund í dag þar sem Hörður Arnarson, forstjóri fyrir­tækisins, og Björgvin Skúli Sigurðsson, framkvæmda­stjóri markaðs- og viðskipta­þróunar­sviðs, kynntu nýtt fyrir­komulag samninga Lands­virkjunar við sölu­fyrirtæki rafmagns sem taka gildi um komandi áramót. Nýju samningarnir lesa af hólmi samninga sem eldra fyrir­komulag þar sem gert var í kjölfar þess að ný raforkulög voru sett árið 2005. Um var að ræða samningar við sex sölu­fyrirtæki og voru samningarnir til eins, fimm, sjö og tólf ára. Þeir lengstu eru því að renna út um komandi áramót.

Breytt fyrirkomulag

Í tilkynningu frá Lands­virkjun vegna málsins segir: „Með nýju fyrir­komulagi samninga þurfa sölu­fyrirtækin ekki lengur að binda aflkaup sín yfir heilt ár í senn. Rafmagns­notkun er að jafnaði minni yfir sumar­mánuðina og því geta sölu­fyrirtækin náð verulegri hagræðingu í innkaupum sínum með því að kaupa minna afl á þeim tíma. Lands­virkjun getur nýtt tækifærið og skipulagt viðhalds­verkefni betur en áður og selt afl með styttri fyrirvara þeim sem á þurfa að halda. Nýja fyrir­komulagið bætir þannig nýtingu orku­auðlinda landsins og eykur sveigjanleika orku­fyrirtækja til að bregðast við breyttum aðstæðum í rekstri.“

Hörður Arnarson segir nýja samninga hafa í för með sér bætta nýtingu raforku­kerfisins. „Meðalverð til viðskipta­vina á heild­sölumarkaði lækkar, miðað við áætlanir þeirra um innkaup á næsta ári. Eftir­spurn eftir endurnýjanlegri orku frá Lands­virkjun er núna meiri en framboð. Þess vegna er afar mikilvægt að ná sem bestri nýtingu á því afli sem er til staðar í kerfinu, í samræmi við hlutverk fyrir­tækisins, sem er að hámarka afrakstur af þeim orku­lindum sem fyrir­tækinu er trúað fyrir með sjálfbæra nýtingu, verðmæta­sköpun og hagkvæmni að leiðar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár