Hagnaður Festar minnkar

Fast­eigna-olíu- og smá­sölu­fyr­ir­tækið Festi hefur skilað hagnað af öllum flokkum starf­semi sinnar það sem af er ári. Hins vegar er hagn­að­ur­inn nokkuð minni en á sama tíma í fyrra.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi
Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festi Mynd: Aðsend

Hagnaður fast­eigna-olíu- og smá­sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Festar nam 1,7 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og er það 16 pró­sentum minna en á sama tíma­bili í fyrra. Hagn­að­ur­inn jókst tölu­vert í smá­sölu­hluta fyr­ir­tæk­is­ins, en dróst nokkuð saman í annarri starf­semi þess.

Þetta kemur fram í nýbirtu upp­gjöri Festar fyrir þriðja árs­fjórð­ung, sem nær frá júlí til sept­em­ber. Framlegð félags­ins á því tíma­bili var nokkuð hærri en á sama tíma í fyrra, eða um 3,3 pró­sent. Aftur á móti hafði hagn­aður félags­ins dreg­ist saman og var hann rúmum fimmt­ungi minni í ár heldur en í fyrra.

Aukinn hagnaður hjá Krónunni og Elko

Ef litið er til fyrstu níu mán­uði sést að allir þættir í starf­semi Festar skil­uðu hagn­aði. Hagn­að­ur­inn er þó mis­mik­ill og hefur hann breyst tölu­vert frá sama tíma­bili í fyrra. Betur hefur gengið í smá­sölu­rekstri félags­ins, en hagn­aður af rekstri Krón­unnar hefur auk­ist úr 552 millj­ónum krónum í 584 millj­ónir króna.

Einnig stórjókst hagn­aður Elko úr 47 millj­ónum króna í fyrra í 348 millj­ónir króna í ár, en Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóri félags­ins segir rekstur raf­tækja­versl­un­ar­innar hafa verið langt umfram vænt­ingar. Enn fremur bendir Eggert á að aukn­ingin hafi átt sér stað, þrátt fyrir 70 pró­senta tekju­sam­drátt í raf­tækja­búð­inni í Leifs­stöð.

Minni hagnaður hjá N1, fasteignafélaginu og lagerþjónustu

Aðra sögu er að segja um rekstur N1, en hagn­aður olíu­fé­lags­ins dróst saman úr tæpum 400 millj­ónum króna í fyrra í tæpar 30 millj­ónir í ár. Sam­drátt­inn má að mestu leyti rekja til tekju­falls í elds­neyt­is­verslun, en þær dróg­ust saman um tæpan fimmt­ung. Þrátt fyrir það segir Eggert að rekstur N1 hafi gengið mjög vel í sumar, en að félagið hafi fundið mikið fyrir sam­komu­tak­mörk­unum í haust.

Undir Festi er líka fast­eigna­fé­lag og Bakkinn vöru­hótel, sem sér um lag­er­þjón­ustu. Samkvæmt árs­fjórð­ungs­upp­gjör­inu hefur tekjum í þessum tveimur félögum stór­lækkað í ár, en þær voru helm­ingi minni en á sama tíma­bili í fyrra. Einnig hefur hagn­aður þeirra stór­lækkað, úr 4,2 millj­örðum króna í fyrra niður í 130 millj­ónir króna í ár. Rekstr­ar­nið­ur­stöður þess­arra tveggja félaga er ekki sund­ur­greind frekar í upp­gjör­inu, þannig að óvíst er hvort annað þeirra hafi skilað tapi í ár.

Rekstr­ar­nið­ur­stöður Festar svipa til nið­ur­staðna smá­sölu-og olíu­fyr­ir­tæk­is­ins Haga, sem Kjarninn fjall­aði um í síð­ustu viku. Þar juk­ust tekjur í versl­unum fyr­ir­tæk­is­ins, en dróg­ust saman um rúm­lega fimmt­ung í elds­neyt­is­sölu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár