Rósa Björk Brynjólfsdóttir, varaþingkona Vinstri grænna, hefur lagt fram ítarlega fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra um samskipti hans við skattrannsóknarstjóra og meðferð máls er varðaði kaup embættisins á upplýsingum um aflandsfélög. Er meðal annars óskað eftir rökstuðningi ráðherra á því verklagi að segja skattrannsóknarstjóra að leggja sjálfstætt mat á gögnin en setja jafnframt skilyrði fyrir samningum við seljanda þeirra. Þá er spurt hvort sú staðreynd að ráðherra átti sjálfur aflandsfélag um tíma hafi haft áhrif á afstöðu hans til kaupa á gögnunum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





















































Athugasemdir