Hildur Guðnadóttir vann Grammy-verðlaun fyrir Chernobyl

Hildur Guðna­dóttir bætti enn einum stór­verð­laununum í sarpinn í kvöld þegar hún hlaut Grammy-verðlaun.

Hildur Guðna­dóttir vann í kvöld Grammy-verðlaun fyrir að gera tónlistina við sjónvarps­þættina Chernobyl.

Um er að ræða enn eina rósina í hnappagat Hildar sem hlaut Emmy-verð­launin fyrir tónlistina við Chernobyl í september í fyrra og varð fyrr á árinu fyrsta konan til að vinna ein Golden Globe verðlaun fyrir tónlistina í kvik­myndinni Joker. Hún hlaut einnig verðlaun fyrir tónlistina í Joker á kvikmynda­hátíðinni í Feneyjum auk þess sem hú var valin sjónvarps­tónskáld ársins á World Soundtrack Awards.

Þann 13. janúar var greint frá því að hún væri tilnefnd til Óskars­verðlauna fyrir tónlistina í Joker, en þau verða afhend 9. febrúar næst­komandi. Viku áður verða Bafta-verð­launin afhend en Hildur er einnig tilnefnd til þeirra.

Hildur er 37 ára gömul og hefur notið mik­illar vel­gengni á sviði kvik­mynda­tón­listar und­an­farin miss­er­i.

Chernobyl sjón­varps­þættirnir frá HBO fjalla um Chernobyl-slysið í apríl 1986 en það er alvar­leg­asta kjarn­orku­slys sög­unn­ar. Hildur greindi frá því í viðtali við The Guardian í desember að hún hafi farið til borgarinnar sem þættirnir fjalla um til að taka upp hljóðin í kjarnorku­verinu sem er þar enn. Þær upptökur notaði hún síðan í tónverkið fyrir þættina.

Fjallað var um Chernobyl-slysið í frétta­skýringu á Kjarnanum í fyrra­sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár