Hetjurnar frá Chernobyl

Chernobyl slysið var atburður sem er þrykktur í minni margra. Um þessar mundir er verið að sýna sjón­varps­þætti um atburð­ina.

Um þessar mundir eru í sýn­ingu sjón­varps­þættir frá HBO sem fjalla um Chernobyl-slysið í apríl 1986 en það er alvar­leg­asta kjarn­orku­slys sög­unnar. Und­ir­rit­aður man vel eftir þessum tíma og hræðslu almenn­ings gagn­vart Sov­ét­ríkj­unum þá.

Sú hræðsla sner­ist ekki lengur um neina hern­að­ar­lega íhlutun, heldur var nú flestum ljóst að inn­viðir þessa tröllaukna heims­veldis voru orðnir veikir og ótt­að­ist fólk frekar að mis­tök eða slys gætu valdið stór­skaða. Aðeins nokkrum árum fyrr höfðu Sov­ét­menn skotið niður suður kóreska far­þega­þotu. Allir far­þegar fór­ust og Sov­ét­ríkin voru harð­lega for­dæmd. Svör Sov­ét­ríkj­anna voru nær alltaf á sama veg: Öryggi lands­ins var ógnað og þau þurftu að bregð­ast við. Vænisýki og sjúk leynd­ar­hyggja virt­ust ráða lögum og lofum í Kreml.

Við skulum samt ekki gleyma því að rúss­neska þjóðin og nágrannar þeirra hafa mátt þola ýmis­legt í gegnum tíð­ina. Styrj­aldir, hung­ursneyð og harð­indi, allt þetta hefur skapað fólk sem býr yfir ótrú­legri seiglu, ósér­hlífni og fórn­fýsi. Það kom ber­lega í ljós er Sov­ét­menn þurftu að takast á við afleið­ingar þessa hrika­lega atburðar í Chernobyl þann 26. apríl 1986. Það eru ótal­margar „hvunn­dags­hetjur“ sem koma að þess­ari sögu, hvort sem það eru slökkvi­liðs­menn, læknar og hjúkr­un­ar­fólk eða aðrir, margir unnu af óeig­in­girni og ósér­hlífni og sumir guldu fyrir það með lífi sínu. Við munum aldrei fá að vita nöfn allra sem unnu hetju­dáðir en við höfum þrjú nöfn sem við skulum skoða betur.

Alexei Aranenko, Valeri Bezpalov og Boris Baranov. Fæstir Evr­ópu­búar kann­ast við nöfn þess­ara manna en ýmsir telja að þeir hafi mögu­lega komið í veg fyrir að Chernobyl-slysið yrði jafn­vel meiri ham­farir en það varð í raun. Þyrlur höfðu flogið yfir svæðið og stað­fest að þakið yfir kjarna­ofn­inum hafði brotnað og ofn­inn sendi við­stöðu­laust ban­vænan skammt af geisla­virkni út í and­rúms­loftið. Það var nógu slæmt en verra var að ofn­inn var hægt að sökkva ofan í jörð­ina en undir honum voru hol­rými full af vatni. Sér­fræð­ingar töldu hættu á því að þetta myndi á end­anum leiða til svo öfl­ugrar spreng­ingar að nær­liggj­andi svæði í 200 km rad­íus myndu gjör­eyð­ast, þar á meðal Kænu­garður, höf­uð­borg Úkraínu.

Ákveðið var að senda þrjá menn í köf­un­ar­bún­ingum niður í vatnið, þeir þyrftu að kom­ast að loka og opna hann svo vatnið myndi streyma úr rým­inu. Þetta var hæg­ara sagt en gert. Aðstæður væru erf­iðar í myrkri og vatni en auk þess var geisla­virknin á þessu svæði, rétt undir ofn­inum, algjör­lega ban­væn. Það var öllum ljóst að þetta væri sjálfs­morðs­leið­angur. Þrátt fyrir það þá buðu sig fram þrír sjálf­boða­liðar: Alexei Ananenko, verk­fræð­ingur sem vissi hvar lok­ann væri að finna. Valeri Bezpalov, sam­starfs­maður Ananenko og því stað­ar­háttum kunn­ugur. Boris Baranov, verk­stjóri sem átti að vera þeim Ananenko og Baranov til aðstoðar.

Í fyrstu gekk þeim ágæt­lega að kom­ast áfram en ljós þeirra gáfu sig og þurftu þeir þá að þreifa sig áfram í myrkv­uðu vatn­inu. Varla er hægt að ímynda sér hve erfitt það hefur verið en þeir héldu ró sinni og vissu­lega hjálp­aði að þeir þekktu vel til bygg­ing­ar­innar. Þó sótt­ist ferð þeirra seint en þeir gáfust ekki upp eða misstu stjórn á sér. Þeim var vel ljóst hve alvar­legar afleið­ingar það hefði ef þeim tæk­ist ekki ætl­un­ar­verk sitt. Að end­ingu fundu þeir lok­ann og tókst að opna hann.

Á næstu dögum var um 30 þús­und tonnum af geisla­virku vatni dælt burt af svæð­inu. Hættunni á spreng­ingu sem hefði getað breytt stórum hluta Evrópu í óbyggi­lega eyði­mörk, hafði verið afstýrt. Þre­menn­ingum var fagnað sem hetjum er þeir birt­ust, öllum var ljóst hve mikið var í húfi og að fórn­fýsi þeirra myndi lík­lega hafa kostað þá lífið. Þeir höfðu allir orðið fyrir ban­vænum skammti af geisla­virkni. En það furðu­lega gerð­ist, allir þeirra lifðu af. Boris Baranov varð bráð­kvaddur árið 2005 en þeir Ananenko og Bezpalov eru enn á lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár