Bláskógabyggð mátti loka hjólhýsasvæði en uppsker gagnrýni ráðuneytis

Sveitar­stjórn Bláskóga­byggðar hefði getað vandað betur til verka þegar það tók ákvörðun um að loka hjólhýsa­svæði á Laugar­vatni en braut samt ekki stjórnsýslu­reglur, samkvæmt samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytinu. Vísbendingar eru um að sveitar­félagið hafi ekki tryggt bruna­varnir á svæðinu um nokkurt skeið.

Þungt yfir
Þungt yfir Eigendur hjól­hýsa við Laug­ar­vatn hafa und­an­farið staðið í stappi við sveit­ar­fé­lagið um lokun svæð­is­ins. Nú síð­ast kvört­uðu sam­tök þeirra til sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna máls­með­ferðar Blá­skóga­byggðar. Mynd: Davíð Þór

Bláskóga­byggð mátti ákveða að loka hjólhýsa­svæðinu á Laugar­vatni og standa að því með þeim hætti sem sveitar­félagið gerði að mati samgöngu- og sveita­stjórnar­ráðuneytisins. Mikil óánægja hefur verið á meðal þeirra sem átt hafa hjólhýsi á svæðinu með ákvörðunina en stórum hluta þeirra hefur verið gert að fjarlægja hjólhýsin og meðfylgjandi byggingar af svæðinu. Þeir sem enn eru með samninga um viðveru á svæðinu mega vera þar út árið 2022. 

Samhjól, samtök hjólhýsa­eigenda á svæðinu, kvörtuðu yfir máls­meðferð og ákvörðun Bláskóga­byggðar til ráðuneytisins. Ráðuneytið tók málið til efnislegrar umfjöllunar en komst að niður­stöðu um að hvorki væri ákvörðunin stjórnvalds­ákvörðun né hafi máls­meðferðin brotið jafnræðis-, réttmætis- eða meðalhófs­reglu stjórnsýslu­réttar. Það eru reglur sem gilda til að tryggja borgurum sann­gjarna máls­meðferð gagnvart stjórn­völdum. 

Lengi skortur á brunavörnum

Sveitar­stjórn Bláskóga­byggðar telur ekki stætt á öðru en að loka svæðinu vegna skorts á bruna­varna. Það hefur þó skort lengi og tiltekur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár