„Skil vel að fólk sé óþolinmótt og pirrað“

Viðskipta­vinir LÍN hafa ekki getað nálgast upplýsingar um stöðu sinna mála í gegnum sitt svæði hjá lána­sjóðnum frá því í lok sumars, vegna tafa og hnökra á innleiðingu nýs upplýsinga­kerfis. Framkvæmda­stjóri LÍN segir tafirnar bæði hafa valdið álagi á starfs­fólk og töfum á upplýsinga­gjöf til viðskipta­vina. Hins vegar séu allar upplýsingar aðgengilegar í gegnum tölvupóst eða síma.

Mitt svæði LÍN
Mitt svæði LÍN Þegar not­endur skrá sig inn á sitt svæði hjá LÍN í dag, 8. nóv­em­ber, blasa þessi rúm­lega tveggja vikna gömlu skila­boð við. Mynd: Hólmfríður Sigurðardóttir

„Enn eru tafir á því að hægt sé að birta upplýsingar um stöðu lána, en allt bendir til þess að það takist fyrir næstu mánaðarmót. Enn og aftur er beðist velvirðingar á þeirri miklu töf sem hefur orðið á birtingu þessara upplýsinga.“

Þessi 18 daga gömlu skilaboð, frá 21. október, blasa við viðskipta­vinum LÍN í dag, þegar þeir skrá sig inn á mitt svæði lána­sjóðsins. Ljóst er að ekki hefur tekist að birta upplýsingar um stöðu lána fyrir mánaða­mótin, eins og vonast var til. Truflun hefur verið á upplýsinga­gjöf LÍN til viðskipta­vina í nokkra mánuði, með tilheyrandi óþægindum. „Þetta skýrst af því að við erum að taka nýtt upplýsinga­kerfi í gagnið,“ útskýrir Hrafnhildur Ásta Þorvalds­dóttir, framkvæmda­stjóri LÍN. „Við byrjuðum að afgreiða námslán út úr nýju kerfi fyrir þetta haust og greiðum nú út námslán samkvæmt nýju kerfi. Gamla kerfið var komið til ára sinna og því var nauðsynlegt að skipta því alfarið út. Þetta er hins vegar ekki kerfi sem þú skiptir út öllu í einu. Þú tekur þetta eins og þú sért að borða fíl, einn bita í einu. Við höfum svo sérhæft kerfi og það þurfti að sérsmíða mikið í kringum það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár