Heilaæxlið óhreyft vegna verkfalls

Helga Aðal­steins­dóttir kennari er með góðkynja heilaæxli sem þarf að fjarlægja. Átti að fara í aðgerð í apríl þegar verkfall skall á.

Óvinnufær vegna síþreytu
Óvinnu­fær vegna síþreytu Helga kæm­ist til vinnu fljót­lega eftir aðgerð en allt stendur fast vegna verk­falla. Mynd: Úr einkasafni.

Helga Aðal­steins­dóttir, kennari á Ísafirði, hefur verið vikum saman heima í veikinda­leyfi vegna verkfalla. Hún er með góðkynja heilaæxli sem veldur síþreytu og því að hún getur ekki sinnt starfi sínu sem grunn­skóla­kennari. Til stóð að skera burt hluta af æxlinu í apríl en verkföll heilbrigðis­stétta hafa valdið því að hún kemst ekki í aðgerðina. Hún hefur áður farið í sambærilega aðgerð og náði þá fljótlega styrk. Vikum saman hefur hún verið í veikinda­leyfi og beðið þess að vera kölluð inn í aðgerðina sem er einföld og getur tryggt að hún komist aftur í vinnuna. Helga hefur ritað samninga­mönnum BHM og ríkisins opið bréf á bloggsíðu sinni vegna þessa. Þar lýsir hún aðstæðum sínum og biður þá um að semja. 

„Ég er orðin mjög þreytt á að vera haldið í gíslingu, langar til að geta tekið þátt í samfélaginu og stundað mína vinnu… en það er smá vesen á mér, sko smá bilun í kerfinu og ég ekki alveg í lagi og þarfnast „smá“ viðgerðar á Lansanum... átti sko að fara í aðgerð í mars sem var frestað fram í apríl m.a. vegna uppsafnaðs vanda eftir lækna­verkfall svo nú er ég enn að bíða og bíða og bíða....,“ skrifar hún. 

„Ég er orðin mjög þreytt á að vera haldið í gíslingu, langar til að geta tekið þátt í samfélaginu og stundað mína vinnu.“

Helga segir að hún væri trúlega komin í vinnu aftur ef allt væri eðlilegt og aðgerðin hefði verið gerð í maí. Biðinni fylgi líka mikið andlegt álag og óvissa um það hvort núverandi ástand leiði til varanlegs skaða. 

„...Veit nefnilega alveg hvað bíður mín ef ég fæ ekki viðeigandi læknis­þjónustu... Mjög skert lífsgæði og örorku­bætur vegna sjón­skerðingar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár