Afgönsku fjölskyldunum tveimur ekki vísað úr landi í þessari viku

Sarwary og Safari fjöl­skyld­unum verður ekki vísað úr landi í þess­ari viku.

Flóttafólk mótmælir þann 13. febrúar 2019
Flótta­fólk mót­mælir þann 13. febr­úar 2019 Mynd: Bára Huld Beck

Engum úr afgönsku fjöl­skyld­unum tveimur, sem bíða brott­vís­unar, verður vísað úr landi í þess­ari viku, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Frétta­flutn­ingur af brott­vísun Shanhaz Safari og börnin hennar tveimur ásamt brott­vísun afgönsku drengj­anna Mahdi og Ali Sarwary ásamt föður þeirra hefur vakið hörð við­brögð og skorað hefur verið á stjórn­völd að hætta brott­vísun barna á flótta.

Endursend til Grikklands

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur úrskurðað að Shanhaz Safari og börn hennar tvö­, Zainab og Amir, fái ekki alþjóð­lega vernd hér á landi. Íslensk stjórn­völd hafa hafnað því að taka mál ­fjöl­skyld­unnar til efn­is­legrar með­ferðar á þeim for­sendum að fjöl­skyldan hafi þegar fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­land­i.

Sótt hefur verið um end­ur­upp­töku í máli fjöl­skyld­unnar í tvígang en í báðum til­vikum hefur þeim verið hafn­að. Í seinni upp­töku­beiðn­inni var byggt á því mati sál­fræð­ings að ef brott­vísun yrði fram­kvæmd yrð­i Zainab ­fyrir sál­rænum skaða. Á það var hins vegar ekki fall­ist og beiðn­inni hafnað í lok síð­asta mán­að­ar. Ef ákvörðun íslenskra stjórn­valda fær að standa verður fjöl­skyld­unni vísað úr landi í næstu viku.

Enn fremur var greint frá því á mánu­dag­inn síð­asta að vísa átti afgönsku drengj­un­um Mahdi og Ali Sarwary á­samt föður þeirra úr landi en brott­vísun þeirra til Grikk­lands var frestað vegna mik­ils kvíða hjá öðrum drengnum. Ekki er þó vitað hvenær brott­vísun barn­anna mun fara fram en sam­tökin No ­Border­s Iceland telja það muni ger­­ast seinna í vik­unni.

Benda á slæma stöðu flóttamanna í Grikklandi

Brott­vísun fjöl­skyld­anna tveggja hefur verið harð­lega gagn­rýnd á síð­ustu dögum. UNICEF á Íslandi hefur skorað á stjórn­völd að taka mót­töku barna sem sækja um alþjóð­lega vernd til end­ur­skoð­unar. Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum er bent á að alþjóða­stofn­anir hafa upp­lýst með reglu­bundnum hætti um slæma stöðu barna á flótta í Grikk­landi. Fjöl­skyldur búi víða í tjald­búðum og aðeins rúmur helm­ingur barn­anna fái aðgang mennt­un. For­eldrar hafi ­ekki mögu­leika á að sækja vinnu og sjá fjöl­skyldu sinni far­borða. Þrátt fyrir þetta séu börn sem þegar hafa hlotið alþjóð­lega vernd þar í landi end­ur­send til Grikk­lands.

Þá hefur umboðs­maður barna sent bréf til dóms­mála­ráð­herra og for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar þar sem hann óskar eftir fundi hið fyrsta til að fara yfir mál barna sem end­ur­senda á til Grikk­lands þar sem fjöl­skyld­unum hefur verið veitt alþjóð­leg vernd.

Hefur ekki heimild til að stíga inn í einstaka mál

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, sagði í gær í stöðu­færslu á Facebook að hún gæti ekki tjáð sig um mál­efni ein­staka fjöl­skyldna en að mál þeirra séu til skoð­unar innan þess kerfis sem lög­gjaf­inn hafi búið til um mála­flokk­inn. Hún segir að svo hægt sé að tryggja jafn­ræði í með­ferð slíkra mála hafi hún ekki heim­ild til að stíga inn í ein­staka mál.

Í stöðu­færsl­unni tekur hún þó fram að hún hafi lengi talað fyrir því að það þurfi sér­stak­lega að fara yfir fram­kvæmd útlend­inga­lag­anna þegar að kemur að börnum. Hún bendir á að tekið sé fram í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar að nú þegar komið er reynsla á lögin þá sé hægt að end­ur­skoða þau.

Þá greinir Þórdís frá því að í síð­ustu viku hafi verið ráð­herra­fundur um út­lend­inga­mál og að til­efni fund­ar­ins hafi meðal ann­ars verið að endur­hugsa þver­póli­tíska út­lend­inga­nefnd sem sett var á lag­girnar árið 2014, til dæmis með því að bæta inn í hana full­trúa barna­mála­ráð­herra og end­ur­skoða almennt hlut­verk hennar. „Út frá þessu höfum við rætt að rýna ákveðna þætti betur,“ skrifar Þórdís að lokum.

Skýr­ingar Þórdísar í stöðu­færsl­unni hafa hins vegar verið harð­lega gagn­rýndar, þar á meðal af Þórhildi Sunnu Ævars­dóttir, þing­manni Pírata. Þór­hildur Sunna skrifar í athuga­semd við stöðu­færsl­una að Þórdís geti ákveðið hér og nú að brott­vísa engum börnum til Grikk­lands. „Þú gætir líka meira að segja bara ákveðið hér og nú að brott­vísa engum börnum til Grikk­lands eða Ítalíu þar sem allir vita að engin mannúð bíður barna. Þarft ekki að rýna neitt. Þetta er margrýnt og lengi vitað. Segðu bara stopp Þórdís, sýndu hug­rekki!,“ skrifar Þór­hildur Sunna.

Boðað hefur verið til mót­mæla­göngu í dag klukkan 17.00 þar sem fólk er hvatt til þess að ganga fylktu liði frá Hall­gríms­kirkju að Aust­ur­velli til að mót­mæla brott­vís­unum barna á flótta. Yfir 1400 manns hafa boðað komu sína á mót­mælin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár